Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra vildi sjá tjónið á Reyðarfirði í lok september eftir óveður með eigin augum og fór hann því í sérferð með þyrlu Landhelgisgæslunnar austur.
Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðuneytisins viðfyrirspurn Austurfrétt en Fréttablaðið greinir frá.
Staðarmiðillinn spurðist fyrir um hvað hefði kallað á að ráðherra væri fluttur sérferð með þyrlu strax að kvöldi mánudagsins 26. september í stað þess að fljúga með áætlunarflugi daginn eftir. Heimamenn voru hissa á því að ráðherra hafi látið sjá sig, að því er segir í frétt miðilsins.
Samkvæmt Austurfrétt fór dómsmálaráðherrann ásamt aðstoðarmanni, fulltrúa almannavarnardeildar og formanni Slysavarnarfélagsins Landsbjargar seinni partinn þennan dag. Lent hafi verið á Egilsstöðum og keyrt til Reyðarfjarðar. Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður ráðherra, segist hins vegar ekki hafa verið með í för eins og kom upphaflega fram í þessari frétt.
„Að mati ráðherra er ljóst að tjón íbúa er umtalsvert, bæði fjárhagslegt og tilfinningalegt. Til þess að geta metið tjón og næstu skref í kjölfar hamfara er í ákveðnum tilvikum nauðsynlegt að sjá aðstæður með eigin augum og ræða við þá sem eru á staðnum,“ segir í svari dómsmálaráðuneytisins til staðarmiðilsins.
Þar segir ennfremur að um hafi verið að ræða eitt versta veður sem hafi sést á Íslandi um áratugabil og að blessun hafi verið að ekki hafi farið verr.
Þá segir Austurfrétt að í svarinu hafi komið fram að dómsmálaráðherra hafi gefið munnlega skýrslu um það sem augu bar fyrir austan á fundi með ríkisstjórn Íslands daginn eftir, þann 27. september.
Mæltist misvel meðal heimamanna
Staðarmiðillinn óskaði jafnframt eftir upplýsingum um kostnað vegna ferðarinnar. Dómsmálaráðuneytið vísaði þeirri fyrirspurn til Landhelgisgæslunnar.
Gæslan segir í svari sínu til Austurfréttar að hún hafi í gegnum tíðina flutt fulltrúa stjórnvalda og annarra viðbragðsaðila á vettvang náttúruhamfara hérlendis. Aðstoð við almannavarnir sé enda eitt lögbundinna hlutverka hennar.
Þá segir miðillinnn að ferð Jóns austur hafi mælst misvel meðal Reyðfirðinga sem Austufrétt hafi rætt við.
„Einn sagðist vart hafa trúað eigin eyrum þegar hann heyrði af því að ráðherrann væri á leiðinni,“ segir í frétt miðilsins. Heimafólk hafi haft nóg annað að gera þennan dag, ýmist verið að loka húsum eða ná utan um stöðuna.
Þá hefur Austurfrétt eftir íbúum að takmarkað hafi verið hægt að sjá þar sem hersingin kom ekki á Reyðarfjörð fyrr en komið var fram undir myrkur.
Leiðretting: Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmólaráðherra, neitar því alfarið að hafa farið með austur.