Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í fótbolta, tók þá ákvörðun að koma til Íslands þegar móðir hans veiktist illilega af krabbameini og heilsu hennar hrakaði hratt til að vera við hlið hennar í dauðastríðinu.
Á þeim tíma spilaði hann með Sandhausen í Þýskalandi en Rúrik segir að stjórnendur félagsins hafi verið ósáttir með þessa ákvörðun og var hann í raun gerður brottrækur eftir að hann sneri til baka til Þýskalands.
Þetta segir Rúrik í viðtali hjá Sölva Tryggvasyni en hann var gestur í nýjasta hlaðvarpsþætti Sölva.
Rúrik spilaði með liðinu í tvö ár og tók á sig 20 prósent launalækkun vegna COVID-19 faraldursins. Hann vildi frekar gefa þessi 20 prósent til góðgerðarmála en til moldríkra eiganda fótboltafélagsins. Ekki var tekið vel í það og telur Rúrik að það hafi einnig spilað inn í að hann hafi verið látinn fara. Hann segir forsvarsmenn félagsins hafa komið mjög illa fram við sig.
,,Þeir fóru í fjölmiðla og sögðu að ég væri ekki ,,fit”, af því að ég hafi ekkert æft á Íslandi, en þegar ég var á Íslandi í þessar þrjár vikur æfði ég upp á hvern einasta dag. Ég var á daginn og kvöldin bara uppi á líknardeild og svo á milli þess sem ég var á líknardeildinni, þá skaust ég á æfingar,” segir Rúrik í viðtalinu.
,,Svo lætur mamma lífið 16. apríl og ég fór í kistulagningu, en ákvað semsagt til að þóknast klúbbnum, af því að það var komin gríðarleg pressa frá þeim að koma að æfa…að þá ákvað ég að sleppa jarðarförinni til að sýna mitt ,,commintment” gagnvart klúbbnum, en fékk ekki meiri verðlaun en það að ég var bara sendur heim,” segir Rúrik sem fékk ekki að mæta á eina einustu æfingu eftir þetta.