Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV, fór í PCR-próf á sunnudaginn ásamt þremur börnum sínum, eitt þeirra einungis eins árs gamalt, eftir vikulanga sóttkví.
„Á mánudegi leita ég tíðinda en er sagt að bíða rólegur. Í dag fæ ég svo loks svar um að eitthvað hafi misfarist og sýnin okkar finnast ekki- á að mæta aftur,“ skrifar Björn á Twitter og spyr síðan „Hverjir hafa lent í týndu PCR-þroti?“
Einn skrifar undir tístið hans að þetta sé eitthvað sem einungis Björn Þorfinnsson getur lent í en enginn hefur hingað til sagt frá svipuðum hremmingum.
Fór í PCR-test á sunnudaginn með þrjú börn (einn 1 árs) eftir vikulanga sóttkví. Á mánudegi leita ég tíðinda en er sagt að bíða rólegur. Í dag fæ ég svo loks svar um að eitthvað hafi misfarist og sýnin okkar finnast ekki - á að mæta aftur. Hverjir hafa lent í týndu PCR-þroti?
— Bjorn Thorfinnsson (@BThorfinnsson) January 11, 2022