Heillandi jólaþáttur um Sigvalda Kaldalóns á Hringbraut í kvöld

Vert er að vekja athygli á heillandi jólaþætti Jóns G. Haukssonar kl. 21 í kvöld á Hringbraut um lækninn og tónskáldið Sigvalda Kaldalóns. Þátturinn ber heitið Sigvaldi Kaldalóns; töfrar tónskáldsins og læknisins ljúfa.

„Það var gaman að taka þetta hliðarspor yfir í menninguna og gera þennan þátt um Sigvalda Kaldalóns, lækninn ljúfa sem töfraði fram nokkrar af dýrmætustu tónlistarperlum þjóðarinnar. Við Friðþjófur Helgason kvikmyndatökumaður höfum unnið að þessu verkefni frá því í haust og notið meðal annars aðstoðar þeirra Gunnlaugs A. Jónssonar og Sigvalda Snæs Kaldalóns, barnabarna Kaldalóns,“ segir Jón G. Hauksson um þátt sinn um Sigvalda Kaldalóns sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld kl. 21; á jóladagskvöld.

Sigvaldi gegndi embætti héraðslæknis við Ísafjarðardjúp, í Flatey og í Grindavík. Hann samdi yfir 200 lög samhliða læknisstörfum sínum. Þeirra á meðal eru margar af dýrmætustu tónlistarperlum þjóðarinnar.

„Við stiklum á stóru um æviskeið þessa mikla meistara. Lögðum leið okkar vestur í Ísafjarðardjúp snemma í október og þar náði Friðþjófur einstökum myndum í Kaldalóni og víðar við Snæfjallaströnd. Við höfðum heppnina með okkur, veðrið var stórkostlegt þennan laugardag þannig að úr varð myndaveisla sem áhorfendur fá að njóta,“ segir Jón.

Jón segir að Sigvaldi hafi byrjað sem læknir einn vetur á Hólmavík í afleysingum en síðan verið skipaður læknir í einu erfiðasta læknishérðaði landsins, Nauteyrarhéraði, vorið 1910 og þá flust með fjölskyldu sína að bænum Ármúla á Snæfjallaströnd, aðeins 29 ára.

„Sagt er að í náttúrufegurðinni fyrir vestan hafi Sigvaldi fæðst sem tónskáld þótt hann hafi verið byrjaður að semja á menntaskólaárum sínum og í læknisfræðinni. Lögin hans voru fyrst gefin út 1916 og slík var eftirspurnin eftir þeim að engum duldist að læknirinn ljúfi við Djúpið hafði stigið á stóra sviðið sem vinsælasta tónskáld þjóðarinnar á þeim tíma. Þetta sama ár tók hann sér ættarnafnið Kaldalón.“

Sigvaldi var mikill náttúruunnandi og sótti bæði kraft og innblástur í náttúruna.

Ennfremur er að finna trúarleg stef í lögum hans.

Á meðla þekkra laga Sigvalda eru lögin:

Ísland ögrum skorið,

Á Sprengisandi – sem margir kannast við sem Ríðum, ríðum rekum yfir sandinn.

Suðurnesjamenn; fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn…

Hver á sér fegra föðurland?

Hamraborgin,

Við sundið,

Eina hjartans yndið mitt,

Ég lít í anda liðna tíð,

Sofðu, sofðu góði,

Bíum, bíum bamba,

Mamma ætlar að sofna,

Erla, (Erla, góða Erla)

og auðvitað lögin….

Ave María,

Nóttin var sú ágæt ein,

og Aðfangadagskvöld jóla 1912Kirkjan ómar öll.