Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, telur að yfirvöld muni aldrei veita landsmönnum fullt frelsi að nýju frá sóttvarnaraðgerðum.
Sóttvarnaraðgerðir voru hertar í kjölfar metfjölda Covid-smita hér á landi. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekki tímabært að ræða harðari sóttvarnaaðgerðir. Bólusetningarskylda hefur verið rædd en er ekki til skoðunar hér á landi.
Heiðrún er svartsýn á framhaldið á Twitter:
„Í ljósi þess að við sem höfum fengið bæði bólusetningu og covid-smit verðum fyrir sömu skerðingum á frelsi og aðrir, þá er ég ansi hrædd um að aldrei komi tilefnið, að mati yfirvalda, til að veita fullt frelsi að nýju,“ segir hún og bætir við: „Aldrei.“