Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, er allt annað en satt með Fjölmiðlanefnd eftir að nefndin ákvað að úrskurða hlaðvarp Hjörvar Hafliðasonar, unnusta hennar, sem fjölmiðill.
Hjörvar var neyddur til að borga 500.000 króna sekt vegna bort á reglum um skráningarskyldu fjölmiðla og bann við viðskiptaboðum fyrir áfengi í hlaðvarpinu. Heiðrún Lind tók það á sig að starfa sem lögmaður Hjörvars og var í samskiptum við Fjölmiðlanefnd fyrir hans hönd.
Málið hins vegar tapaðist og ákvað Heiðrún að hnýta aðeins í nefndina á samfélagsmiðlinum Twitter í dag þegar hún veltir því fyrir sér hvenær fólkið sem setur inn efni á Only Fans verður skráð sem fjölmiðill. Hún spyr jafnframt hvort það þyrfti þá ekki setja íslenskan texta á erótíska efnið á síðunni.
Maður lifandi hvað lífið verður litríkt þegar fjölmiðlanefnd hnýtir í Only Fans fólkið fyrir að tilkynna sig ekki sem fjölmiðil. Þá get ég loks heimtað að þau talsetji efnið á íslensku og gæti kynjasjónarmiða.
— Heidrun (@heidrun_lind) October 26, 2021
Jóhann Óli Eiðsson, blaðamaður Viðskiptablaðsins, notaði tækifærið og sló á létta strengi:
Nú er bara að bíða eftir því að Samkeppniseftirlitið mæti og setji út á þessa tjáningu. https://t.co/8AsmlDJTzQ
— Jóhann Óli Eiðsson (@jedissson) October 26, 2021