Heiðar Guðjónsson, forstjóri fjarskipta- og fjölmiðlunarfyrirtækisins Sýnar, segir að sú ákvörðun að taka kvöldfréttir Stöðvar 2 úr opinni dagskrá fyrr á þessu ári hafi gefist vel. Eftir breytinguna er Stöð 2 hrein áskriftarstöð.
Heiðar er í viðtali í Markaðnum, sem fylgir Fréttablaðinu í dag, þar sem hann lýsir þessu.
„Við erum mjög ánægð með þessa ákvörðun. Og auk þess er meiri samfella í dagskrárgerðinni því nú þarf ekki að huga að því að einhverjir sem eru ekki áskrifendur séu að einnig að horfa. Þetta er hrein áskriftarstöð.“
Þegar hann er spurður hvort stjórnendur hafi í hyggju að ganga enn lengra og setja til dæmis hluta af Vísi.is, sem er oft mest lesni vefmiðill landsins, á bak við greiðslugátt segir hann:
„Það er ein hugmynd. Ef þú skoðar fjölmiðla á Norðurlöndum þá sérðu að þeir eru nánast allir með efni á bak við greiðslugátt. Að því leyti er Ísland í ákveðinni sérstöðu. Stærstu vefmiðlarnir, Vísir og síðan mbl.is, eru með opinn aðgang að nánast öllu sínu efni. En ég get séð fyrir mér eins konar „premium“ áskrift að Vísi sem veitir aðgang að enn meira efni og sníður viðmótið eftir höfði neytandans. Ef þú ert til dæmis mikill íþróttaáhugamaður og heldur með Arsenal þá væru fréttir þess efnis efst á síðunni.“