Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttamaður og varafréttastjóri RÚV, kemur kollega sínum Einari Þorsteinssyni til varnar. Einar var gagnrýndur harkalega eftir viðtal við Má Kristjánsson yfirlækni smitsjúkdómadeildar Landspítalans í Kastljósi í gærkvöldi.
„Í annað sinn á skömmum tíma rís hneykslunaralda á samfélagsmiðlum vegna þess að öflugur fréttamaður í Kastljósi spyr eðlilegra spurninga um eitthvað sem forstjóri Landspítalans lýsir sem alvarlegasta atviks þar í hans starfstíð. 12 sjúklingar á Landakoti eru látnir eftir hópsýkinguna þar þrátt fyrir sýkingarvarnir og hetjulega baráttu heilbrigðisstarfsfólks sem leggur nótt við dag í baráttunni við veiruna,“ segir Heiðar Örn í pistli á Facebook-síðu sinni.
Hann bendir á að úttektin sem kynnt var fyrir helgi – og var tilefni viðtalsins við Má í gærkvöldi – hafi verið ágæt. Niðurstöður hennar bentu til að húsnæði Landakots og undirmönnun skýri hvers vegna fór sem fór.
„Eðlilega hafa vaknað ýmsar spurningar eftir að sú niðurstaða var kynnt og þær spurningar voru bornar upp með kurteisum og hófstilltum hætti í Kastljósinu í gær. Og Már læknir svaraði þeim með sama hætti. Þessi eðlilegu orðaskipti - viðtal fréttamanns við sérfræðing og formann farsóttarnefndar LSH - voru meira en margir þoldu og nú er ráðist að æru og starfsheiðri kollega míns, Einars Þorsteinssonar, eins og gefið hafi verið út veiðileyfi. Fyrir það eitt að hann vann vinnuna sína og bar upp eðlilegar spurningar,“ segir Heiðar.
Hann segir að krafan um að samfélagið eigi allt að ganga í takt á meðan við glímum við veiruna sé merkileg.
„Að það megi ekki rýna í það hvort ákvarðanir séu réttar eða rangar, hvort meiri hagsmunum sé fórnað fyrir minni, hvort hægt hefði verið að komast hjá hópsýkingu sem dró tólf manns til dauða. En það er einmitt hlutverk fjölmiðla í lýðræðisríki eins og okkar. Að spyrja ráðamenn krefjandi og gagnrýninna spurninga – veita aðhald, fyrir hönd almennings.“
Heiðar segir að hneykslunaröldunni á samfélagsmiðlum fylgi svo alls kyns upphrópanir og fullyrðingar um innrætingu eða skoðanir fréttamannsins, eins og það séu hans skoðanir sem stýri för.
„Kunnuglegt stef þegar sett er fram gagnrýni á blaða- og fréttamenn sem vinna vinnuna sína. Auðvitað er fólki frjálst að segja skoðanir sínar á viðtalinu en órökstuddar upphrópanir - til þess eins að efna til óvinafagnaðar í athugasemdakerfunum – eru engum til góðs. Í framhaldi af fyrri hneykslunaröldunni svaraði ég nokkrum ásökunum í garð Einars, bað um dæmi úr viðtalinu um dónaskap hans í garð heilbrigðisstarfsfólks og annarra. Engin komu – bara órökstuddar fullyrðingar um að viðtalið hafi ekki verið tímabært og að tónninn í spurningunum hafi verið rangur. Af því að við eigum jú öll að ganga í takt.“
Í annað sinn á skömmum tíma rís hneykslunaralda á samfélagsmiðlum vegna þess að öflugur fréttamaður í Kastljósi spyr...
Posted by Heiðar Örn Sigurfinnsson on Þriðjudagur, 17. nóvember 2020