Útvarpsmaðurinn Heiðar Austmann undar sig á hversu dýrt það er að heimsækja Bláa lónið en verðið hefur farið hækkandi á síðustu árum.
„Kostar 11 þúsund að fara í Bláa lónið?? Ætlar enginn að segja djók?“ skrifar Heiðar á twitter.
Mun þetta ekki vera í fyrsta skipti sem Íslendingar undra sig á verðinu í Bláa lóninu en á árunum 2011 til 2016 hækkaði verðir um 81 prósent en um sumarið 2016 kostaði 8.700 krónur að fara ofan í lónið að sumri til og ekki nema 4.800 krónur árið 2011.
https://www.dv.is/neytendur/2016/05/14/fokdyr-sundsprettur-fyrir-fjolskylduna-i-blaa-loninu/