Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar, sendir nágrönnum sínum í Barðavoginum samúðakveðjur í kjölfar morðs sem var framið í hverfinu um helgina. Færsla hennar er stutt, en hjartnæm. Kveðjuna birti hún á Facebook-hóp fyrir íbúa í Langholtshverfi
„Kæru nágrannar, Mig langar að senda innilegustu samúðarkveðjur til ykkar sem hafið upplifað hörmulega atburði í Barðavogi.“ skrifar Heiða.
Annar íbúi í hverfinu tók undir kveðju Heiðu, en var þó ekki parsáttur með það hvernig stjórnvöld höfðu hagað málum mannsins sem er grunaður um morðið.
„Það er ekki hægt annað en að taka undir þetta, sérstaklega í ljósi þess að harmleikurinn hefur átt sér margra ára aðdraganda. M.ö.o., þá hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta og það er þyngra en tárum taki. Kannski vekur þetta áhuga velferðarsviðs, Heiða Björg Hilmisdóttir, á að leysa málin á Langholtsvegi 19 þar sem afskaplega veikur einstaklingur býr á vegum borgarinnar og hefur valdið öðrum íbúum (2 ára upp í 92 ára) ómældum vandræðum, ónæði, hræðslu og svefnleysi, svo eitthvað sé nefnt. Það ætti að segja sitt ef einföld talning yrði gerð á símtölum með kvörtunum til velferðarsviðs og eins tölum um komur lögreglu á staðinn til að skakka leikinn (að beiðni íbúa sem gjarnan vilja sofa á nóttunni). Það er mér óskiljanlegt, allra vegna, að hægt sé að horfa framhjá svona löguðu.“
Heiða svaraði því. Hún sagðist ekki þekkja þetta mál heldur hafi hún einfaldlega veriða að reyna að senda samúðarkveðjur. Hún segir að hópurinn ætti frekar að snúast um að sýna fólki kærleika og stuðnin.
„Þekki ekki málin sem þú nefnir ég vil einfaldlega senda samúðarkveðjur til þeirra sem eiga um sárt að binda. Það eru aðrir að rannsaka málavexti. Við erum nágrannar og hér í þessum hóp getum við sýnt hvort öðru kærleika og stuðning.“