Heiða fann gamla dagblaðsklippu þegar hún var tíu ára: Nú mörgum árum síðar fann hún loksins föður sinn

Heiða B. Heiðarsdóttir, sem rekur vefverslunina Pomp og prakt var gestur í útvarpsþættinum Segðu mér, sem er á dagskrá Rásar 1. Þar sagði hún frá því að hún hafi verið ættleidd nokkurra daga gömul, en blóðmóðir hennar var íslensk og blóðfaðir bandarískur.

Hún var auglýst til ættleiðingar í Morgunblaðinu á sínum tíma, en þegar hún var tólf ára gömul fann hún auglýsinguna í förum foreldra sinna.

„Þessi litla auglýsing hafði verið klippt út og einhvern veginn fauk hún úr kassanum þegar ég var að gramsa. Ég flutti að heiman í alveg tvo tíma, alveg brjáluð, þangað til mér var bent á að þarna stæði kjörbarn, alveg sérstaklega valið,“

Þó tekur Heiða fram að hún hafi ekki getað fengið betri foreldra:

„Ég segi oft að ég hefði ekki getað fengið betri foreldra þó ég hefði fengið að velja þau sjálf. Ég elst upp sem einkabarn og einhvern veginn fékk ég allt sem mig vantaði, hélt mig vantaði, allt sem ég heimtaði, ég fékk það í einhverri mynd og mér var svolítið kennt að ég væri bara nafli alheimsins.“

Þegar Heiða var eldri vildi hún hita blóðföður sinn og heyrði hún af stofnun í Bandaríkjunum sem hjálpaði fólki að finna foreldri eða skyldmenni. Hún sendi bréf á stofnunina og komst á sporið.

Fyrst komst hún í samband við frænda sinn og síðan við blóðföður sinn. Í bréfasamskiptum svaraði faðirinn og gekkst við því að vera faðir hennar, en sagðist þó ekki vita að hann ætti dóttur.. Hún segir að það hafi verið mikill léttir.

„Það er eitt fallegasta bréf sem ég hef fengið og lesið. Þar er hann að gangast við því að hafa verið á Íslandi á þessum tíma,“ segir Heiða, en faðir hennar heitir Antonio Sorvino.

Fram kemur að Heiða hafi heimsótt hann í desember og svo hafi hann komið hingað til lands með konunni sinni í júní á þessu ári.

„Þau eiga tvær dætur og önnur þeirra á tvö svolítið fullorðin börn. Núna á hann allt í einu þrjú barnabörn í viðbót, sex barnabarnabörn og sjöunda á leiðinni,“

Hægt er að hlusta á viðtalið við Heiðu á vef Ríkisútvarpsins.