Heiða er nágranni rússneska sendiráðsins og setur hátalarann út í glugga – Kallar eftir aðstoð frá fleirum

Kaupsýslukonan Heiða B. Heiðars gat ekki gert ekki neitt sem nágranni sendiráðs Rússlands í miðbæ Reykjavíkur eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu.

Heiða segir í færslu á íbúahóp á Facebook að hún sem og flestir aðrir séu með hugann við innrásina, hún býr rétt hjá sendiráðinu

„Ég hef prófað að setja hátalara út í glugga og spila úkraníska þjóðsönginn eins hátt og hátalarinn getur. En í garðinum mínum er gróðurhús og fullt af snjó sem líklega dempar hljóðið töluvert. Auk þess sem þetta er ekkert kröftugur hátalari,“ segir hún.

Er hún með hugmynd fyrir íbúana:

„En ef við,nokkuð mörg, sem búum í nágrenninu við sendiráðið myndum taka okkur saman og stilla saman tíma þá gætum við líklega pirrað þá smá. Sett hátalara í gluggann klukkan eitthvað ákveðið á hverjum degi, einu sinni í viku eða eitthvað?“

Heiða segir:

„Mér finnst einhvern veginn eins og ég verði að gera eitthvað. Og að fara út á pall og garga "Slava Ukrania" í hvert skipti sem ég sé starfsmenn rússneska sendiráðsins úti í garði er ekki alveg að gera sig. Þeir koma sjaldnar í garðinn og sendiherran sjálfur virðist alveg hættur því. Auk þess sem starfsfólkið er oftast með börn með sér í garðinum og ég kann ekki við að garga á börn.“

Heiða var spurð hvort henni þætta þetta ekki heldur gróft, hún svaraði:

„Að spila þjóðsöng? Í mínum aktivistahaus er það vægasta borgaralega óhlýðni sem fyrir finnst.“