Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstarréttardómari, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Jón Steinar hefur sterkar skoðanir á fíkniefnalöggjöfinni. Hann segir það hræsni að leyfa áfengi en banna önnur efni.
„Ég er með þá tilgátu að þeir sem eru mjög mikið fyrir áfengi séu jafnvel harðari en aðrir á móti ólöglegum fíkniefnum, af því að þá geta þeir selt sér að áfengi sé nú betra og fínna efni. Það er ekkert annað en hræsni að ég og aðrir lögmenn og dómarar séu að refsa fólki fyrir fíkniefnanotkun eða brot tengd fíkniefnum, en svo förum við saman á barinn að drekka eftir að við erum búnir í vinnunni.“
Jón Steinar þekkir vandamál áfengis af eigin raun og hann þurfti á endanum að fara í meðferð.
„Ég fór í meðferð fyrir 43 árum síðan. Ég var helgardrykkjumaður og drakk nokkra daga í röð, en svo dreif ég mig í meðferð þegar þetta var orðið augljóst vandamál. Ég er mjög vel kvæntur og það var konan mín sem sá til þess að ég gerði loksins eitthvað í málunum.
Ég var í viku í meðferðinni og sá þá hvar ég var staddur og hef ekki bragðað maltöl síðan. Ég fékk loksins almennilega fræðslu um áfengi og fíkn í meðferðinni og eftir það gat ég ekki flúið þær upplýsingar sem ég fékk. Ég er þannig úr garði gerður að ég á erfitt með að ljúga að sjálfum mér og ég hef verið laus við áfengi síðan. Líf mitt batnaði stórkostlega eftir að ég hætti að drekka, bæði mitt og fjölskyldu minnar.“
Í þættinum talar Jón Steinar um Hæstarétt, sem hann hefur oft gagnrýnt.
Hann vill meina að hæstaréttardómarar séu oft ekki nógu sjálfstæðir og sveiflst eftir almenningsáliti hverju sinni:
„Hæstiréttur hefur margoft sveiflast eftir almenningsáliti hvers tíma fyrir sig í stað þess að fara eftir lögunum. Til dæmis eftir hrunið. Þá hafði stemmningin í samfélaginu gríðarleg áhrif á dómara og í raun réttarkerfið í heild. Þegar við horfum til baka sjáum við dóma sem standast ekki skoðun og niðurstaða þeirra markaðist nær eingöngu af tíðarandanum í samfélaginu.
Dómstólar eru einn af hornsteinum lýðræðisins og við verðum að vera gagnrýnin á þá og vinnubrögð þeirra. Ég hef verið opinn um þetta í gegnum tíðina og oft verið ráðist á mig fyrir það. En það var á köflum nánast daglegur viðburður að kollegar mínir hrósuðu mér í einkasamtölum, en enginn þeirra tók undir með mér opinberlega.”
Hann segir það oft hafa kostað sig að þora að segja skoðanir sínar umbúðalaust, meðal annars í samskiptum við gamla vin sinn Davíð Oddsson.
„Í seinni tíð þá hafa komið frá honum hlutir sem ég hef örgustu skömm á. Til dæmis lét ég í ljósi andúð mína á meðferð hæstaréttar á broti þar sem bankamenn voru dæmdir umvörpum í fangelsi fyrir umboðssvikabrot. Það eru skilyrði fyrir slíkum brotum að menn hafi haft tilgang til auðgunar.
Ég skrifaði um þetta og einn af þeim sem voru tengdir Arionbanka, Ólafur Ólafsson, leitaði til mín og ég skrifaði álitsgerð um þann dóm, þar sem ekki stóð steinn yfir steini og brotinn réttur á sakborningi. Ég held, þó að ég viti það ekki fyrir víst að Davíð, gamli vinur minn, hafi alls ekki verið hrifinn af þessu,“ segir Jón Steinar og þegar hann er spurður hvort þeir Davíð séu enn vinir svarar hann:
„Nei, við tölum ekki saman. Við höfum ekki talað saman í meira en ár. Hann hætti bara að tala við mig og hefur líklega farið í fýlu út í mig. Ég held að það sé út af þessu eða einhverjum öðrum skoðunum sem ég hef haft opinberlega, en hann hefur ekki fengist til að segja mér hvað veldur þessum vinslitum. En mér er alveg sama, af því að ég lifi fyrir lögfræðina mína og mína eigin sannfæringu. Ég má ekki byrja að gefa afslátt á minni betri vitund.
Ég hef alltaf tekið það hlutverk alvarlega að vera lögfræðingur og dómari og að starfa við að verja réttindi borgaranna. Það hefur þýtt það að ég hef oft gagnrýnt Davíð í gegnum tíðina, bæði á pólitískum forsendum og öðrum, þó að það hafi nú aldrei valdið vinslitum fyrr en núna.
En ég var til dæmis alls ekki hrifinn af því þegar hann lét Reykjavíkurborg reisa veitingastað uppi á Öskjuhlíðinni á sínum tíma, þegar Perlan var byggð. Hvaða bull er það að Reykjavíkurborg sé að reka veitingastað í Öskjuhlíð? Eða þegar hann ætlaði að láta íslenska ríkið gangast í ríkisábyrgðir fyrir skuldbindingar Íslenskrar Erfðagreiningar. Þetta er einkafyrirtæki Hvaða rugl er það? Ég er hugsjónamaður, bæði í pólitík og lögfræði. Og ef að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að breyta rétt, þá fær hann engan stuðning hjá mér. Ég neita að láta flokka mig í eitthvað lið.“