Hefur megnustu skömm á Ís­lendingum sem reyna að rétt­læta gjörðir Pútíns

Ólafur Stephen­sen, fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­enda, fer hörðum orðum um Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seta og Ís­lendinga sem reyna að rétt­læta hernaðar­brölt hans í Úkraínu, í harð­orðum pistli á Vísi.

Þar segist Ólafur trúa því að meiri­hluti al­mennings í Rúss­landi styðji ekki að land þeirra ráðist á ná­granna­ríki af fyrra­bragði.

„En valda­sjúk­lingarnir í Kreml hafa yfir­höndina af því að í Rúss­landi hefur lýð­ræðið verið fótum troðið. Þessi mikla þjóð á betra skilið en að þar komist ævin­lega ný glæpa­klíka til valda eftir að þeirri síðustu hefur verið steypt af stóli,“ skrifar Ólafur.

„Ég hef megnustu skömm á löndum mínum, sem reyna að rétt­læta gjörðir Pútíns eða sýna þeim „skilning“. Þeir sem eru búnir að koma sér fyrir í því horni um­ræðunnar virðast alls­endis firrtir þeim skelfi­lega veru­leika sem nú blasir við í Evrópu,“ skrifar Ólafur.

Hann segir enga leið að nota „sjaldan veldur einn þá tveir deila“ eða „er þetta nú eitt­hvað verra en ...“-rök­semda­færsluna. „Sem við sjáum sums staðar í ó­upp­lýstum af­kimum sam­fé­lags- og fjöl­miðla.“