Hefur aldrei verið á Tinder

Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra segist aldrei hafa prófað stefnu­móta­for­ritið Tinder. Þrátt fyrir þetta segist hún sjá að tæknin sé farin að hafa raun­veru­leg á­hrif á það hvernig fólk kynnist. Þetta sagði hún í pistli sínum á Face­book um nýtt verk­efni í for­sætis­ráðu­neytinu þar sem grunnur verður lagður að fjórðu iðn­byltingunni.

„Hefði ég hitt maka minn með að­stoð Tinder? Ég veit það ekki. Reyndar hef ég aldrei nýtt mér það stór­merka for­rit en ég sé það að tæknin er farin að hafa raun­veru­leg á­hrif á það hvernig fólk kynnist,“ sagði Katrín.

Hefði ég hitt maka minn með aðstoð Tinder? Ég veit það ekki. Reyndar hef ég aldrei nýtt mér það stórmerka forrit en ég...

Posted by Katrín Jakobsdóttir on Friday, 9 October 2020

„Það er ein­göngu eitt af mörgum sviðum mann­lífsins sem tæknin hefur haft á­hrif á á undan­förnum árum en segja má að fátt í sam­fé­laginu sé ó­snortið af á­hrifum tækni­breytinga.“

Hún hefur nú skipað nefnd sem er ætlað að svara eftir­farandi spurningum til að móta skýra fram­­­tíðar­­­sýn um hvernig ís­­­lenskt sam­­­fé­lag geti unnið með gervi­­­­­greind öllum til hags­bóta:

  • Hver eru réttindi Íslendinga gagnvart nýrri tækni?
  • Hvert á hlutverk tækni og gervigreindar að vera í íslensku samfélagi?
  • Hvaða gildi á íslenskt samfélag að hafa að leiðarljósi við innleiðingu nýrrar tækni?
  • Á hvaða vettvangi mun Ísland ræða og leysa álitamál sem koma upp er varða innleiðingu eða notkun nýrrar tækni?