„Munum við þurfa að loka landinu aftur? Eru það viðbrögð sem eru í undirbúningi?“ Þessum spurningum beindi Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, til Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur ferðamálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.
Gunnar Bragi vísaði í viðtal við Bryndísi Sigurðardóttur smitsjúkdómalækni í Bítinu á Bylgjunni á morgun þar sem rædd var möguleg seinni bylgja COVID-19.
„Þar kom fram að mögulegt væri að jafn margir myndu veikjast, það gæti orðið svipað og var í mars og apríl þegar bylgjan skall á okkur,“ sagði Gunnar Bragi sem í ljósi þessa spurði Þórdísi út í áætlanir stjórnvalda.
„Ég velti líka fyrir mér, hæstvirtur ráðherra, að nú stendur til að eyða fjármunum í að auglýsa landið upp á nýtt. Hvaða áhrif hefur það á þá herferð ef við þurfum að loka landinu aftur? Hafa menn hugsað út í það?
Þórdís Kolbrún sagði að reynt væri að lesa í líkurnar á hugsanlegu bakslagi og annarri bylgju.
„Þannig að við búum okkur undir það að það komi önnur bylgja og við tökum því sem höndum ber hvað það varðar. En við vinnum líka með það að þessi leið feli í sér ásættanlega áhættu og gerum auðvitað ráðstafanir og gerum ráð fyrir því, eins og komið hefur í ljós, að upp komi smit og erum með ferla hvað það varðar og það kann að vera að það verði hópsmit o.s.frv. En hvað varðar alveg nýja stóra bylgju þá er það bara verkefni sem við tökumst á við.“
Varðandi markaðsátakið sagði Þórdís Kolbrún mikinn sveigjanleika vera í því vegna ytri aðstæðna og gert sé ráð fyrir því að óvæntir hlutir geti komið upp.
„En við vinnum út frá því að við viljum að opna landið og erum í samkeppni við önnur ríki um að fá hingað ferðamenn þannig að það er algerlega rétt ákvörðun að fara í þetta átak en sveigjanleikinn þar skiptir máli. Við munum þá geta beitt því og þeim fjármunum sem í það fara með þeim hætti. Ef það kemur önnur bylgja þá þurfum við einfaldlega að endurskoða þær ráðstafanir sem við erum með nú.“
Þórdís sagði það mikið áfall ef við þyrftum að loka landinu á nýjan leik, en hún vildi ekki setja sig í spámannssæti.
„Ég ætla ekki að gerast spámaður um það hvað kann að verða vegna þess að við vitum svo ofboðslega lítið þrátt fyrir að við vitum miklu meira nú en áður. Ef það verður metið sem svo að við getum alls ekki haft landið opið er það auðvitað ákveðin niðurstaða. Við erum miklu frekar að vinna með önnur úrræði en að loka þurfi landinu og það yrði áfall ef svo yrði. Ég minni líka á þá aðferð sem við fórum í framan af af því að smithætta frá ferðamönnum er miklu minni en okkar í milli vegna lítils samneytis ferðamanna við þá sem hér búa.“