Hefur 5G-fjar­skipta­netið á­hrif á veiruna sem veldur CO­VID-19?

Sögu­sagnir þess efnis að tenging sé á milli 5G-fjar­skipta­netsins og CO­VID-19 hafa af ein­hverjum á­stæðum komist á kreik að undan­förnu. Fjallað er um þetta á Vísinda­vefnum þar sem Jónína Guð­jóns­dóttir, lektor í geisla­fræði, varpar ljósi á málið.

Spurt var: Er eitt­hvað til í því að 5G-fjar­skipta­net hafi á­hrif á veiruna sem veldur CO­VID-19?

Jónína segir að í stuttu máli sé ekkert til í því að þetta tvennt tengist, eða að 5G fjar­skipta­netið hafi nokkur á­hrif á kórónu­veiruna sem veldur CO­VID-19.

„Veiran sem veldur CO­VID-19 og 5G-fjar­skipta­net eru tveir alveg ó­tengdir hlutir en sögu­sagnir um tengingu þarna á milli hafa þó komist á kreik,“ segir Jónína í svari sínu.

Hún bendir á að 5G-fjar­skipta­net sé ný (fimmta) kyn­slóð fjar­skipta­tækni þar sem notuð er raf­segul­geislun. Eins og fjallað hefur verið í­trekað um er or­sök CO­VID-19 veira sem smitast með snerti- og dropa­smiti á milli manna.

„Raf­segul­geislun flytur bara orku og getur ekki flutt efni. Því er úti­lokað að nota hana til að dreifa veirum eða öðru efni. Í raun er 5G-raf­segul­geislun í eðli sínu mjög lík eldri kyn­slóðum (4G og 3G) og á­hrifin á manns­líkamann (og aðrar líf­verur) þar með lítið breytt,“ segir í svari Jónínu sem segir enn fremur að ekkert bendi til þess að notkun5G-raf­segul­geislunar sé skað­leg mönnum, sé farið er eftir lögum og reglum.
„Það stafar hins vegar raun­veru­leg hætta af veirunni sem veldur CO­VID-19.

Þekking er eitt besta vopnið í bar­áttunni við vá­gesti eins og veiruna sem veldur CO­VID-19. Því miður geta flökku­sögur, eins og þessi um tengsl 5G og CO­VID-19, dregið at­hyglina frá því sem raun­veru­lega skiptir máli, það er, að nota að­ferðir sem sýnt hefur verið fram á að virka til að hefta út­breiðslu veirunnar.“

Jónína segir ekkert dular­fullt við það að CO­VID-19 og 5G finnist á sömu stöðum á jörðinni því hvort tveggja er al­gengara þar sem fólk er fleira. „CO­VID-19 hefur náð til nánast allra landa en ekkert sam­hengi er á milli þess hve illa lönd verða fyrir barðinu á veirunni og þess hvort inn­leiðing 5G er hafin eða hve langt hún er komin.“