Hefndi sín ræki­lega: Leyfir ekki göngu­stíg eftir harðar deilur sem kostuðu hann stór­fé

„Ég hugsaði með mér: Nú er tíminn til að hefna mín á þeim,“ segir Virgill Scheving Einars­son, land­eig­andi í Skjaldar­koti og Efri-Brunna­stöðum, í sam­tali við Frétta­blaðið í dag.

Virgill hefur hafnað því að leyfa sveitar­fé­laginu Vogum að leggja hjól­reiða- og göngu­stíg inn á land sitt. Virgill viður­kennir að hann hafi ekkert á móti þessum göngu­stíg, hann skipti hann í raun engu máli en á­stæða þess að hann hafni beiðni sveitar­fé­lagsins sé sú að hann sé að hefna sín.

Allt á þetta sér að­draganda sem rakinn er í Frétta­blaðinu en fyrir tíu árum, árið 2010, á­kvað Virgill að loka vegi á landi sínu vegna há­vaða, ryks og ó­næðis frá um­ferðinni. Bæjar­stjórnin vildi halda veginum opnum og fór svo að grjót, sem Virgill lét setja á veginn, var fjar­lægt. Málið fór fyrir dóm sem hafði í för með sér tölu­verðan kostnað.

Þessu til við­bótar hafa staðið yfir deilur um lausa­göngu fjár. Bendir Virgill á að bærinn hafi ekki haldið við sauð­fjár­hólfi sunnan við Reykja­nes­brautina eins og hann eigi að gera.

Virgill segir að göngu­stígurinn sem bærinn vill leggja skipti hann engu máli. Hann er þó enn sár út í fram­göngu sveitar­fé­lagsins.

„Ég væri alveg til í að draga á­kvörðun mína til baka ef bærinn myndi borga lög­fræði­kostnaðinn til baka vegna vega­málsins,“ segir hann en um 600 þúsund krónur var að ræða á sínum, upp­hæð sem í dag væri hægt að fram­reikna í á aðra milljón króna.

Frétt Fréttablaðsins.