„Hef staðið við hliðina á dætrum mínum þegar fólk á­varpar mig á ís­lensku og þær á ensku“

Lauf­ey Lín­dal Ólafs­dóttir segir Ís­lendinga oft vera for­dóma­fullir án þess að gera sér grein fyrir því.

„Ég veit ekki hvaða hug­myndir hvítir Ís­lendingar geri sér al­mennt, en þetta er svaka­lega al­gengt og fólk gerir sér ekki endi­lega grein fyrir því. Ís­lendingar hafa oft ekki orðið beinn skot­spónn kyn­þátta­for­dóma, þótt að hann sé til og hann geti verið nær okkur en við höldum,“ segir Lauf­ey í sam­tali við Frétta­blaðið.

Hún birti færslu á Face­book þar sem hún rifjar upp þegar hún flutti aftur til Ís­lands frá Bret­landi, rétt fyrir aldar­mót. Hún segist hafa fundið fyrir jaðar­setningu sem barn hennar varð fyrir þar sem hún var hvít en barnið hennar ekki.

Lauf­ey á þrjú börn. Tvö þeirra eru dökk á hörund og Lauf­ey segist reglu­lega taka eftir for­dómum sem þær mæti.

„Þær þurfa sí­fellt að út­skýra sjálfa sig. Eins og ég minntist á, spurningin er iðu­lega bara af hverju ertu brún? Þótt að það sé sett í ýmsa búninga. Al­gengt er að spyrja „hvaðan ertu“ og þá dugar iðu­lega ekki að segja „ég er ís­lensk“ því þá kemur „en hvaðan ertu í raun og veru“ oft næst,“ segir Lauf­ey.

„Ég hef staðið við hliðina á dætrum mínum þegar fólk á­varpar mig á ís­lensku og þær á ensku,“ segir hún.

Færslu Lauf­eyjar má lesa í heild sinni hér að neðan.