„Hef alltaf sloppið við þetta en ég slapp ekki núna“

Út­varps­maðurinn Rikki G lenti í fyrsta skipti á ævi sinni í lús­mýinu svo­kallaða á Akur­eyri um helgina. Þessu greindi hann frá í út­varps­þættinum Brennslunni.

Þar mætti Guð­mundur Óli Scheving, mein­dýra­fræðingur og ræddi lús­mýið svo­kallaða. „Ég var að lenda í fyrsta skipti í þessari pest, þessu lús­mý. Ég hef séð fullt af myndum en hef alltaf sloppið við þetta, en ég slapp ekki núna,“ segir Rikki.

Guð­mundur segir að einungis ein tegund af lús­mý sé að finna á Ís­landi, það geti Ís­lendingar prísað sig sæla fyrir. Vísinda­menn telji lús­mýið hafa búið á Ís­landi ára­tugum saman.

„Flugan var alltaf til úti í bit­haganum hjá bú­fénaðinum. En svo gerist eitt­hvað, hún færir sig til. Norður, vestur, austur og út um allt,“ út­skýrir Guð­mundur.

Hann hafi fyrst orðið var við fluguna fyrir sex árum síðan, í Kjósinni. „Það er ekki búið að gefa út sér­staka á­stæðu fyrir því af hverju þetta er að breytast svona, en það er ýmis­legt að breytast í þessu. Við erum að fá alls­konar kvikindi sem eru land­læg. Við erum til dæmis komin með fimm tegundir af maurum, þrjár tegundir af kakka­lökkum.“

Guð­mundur mælir með ýmsu til að losna við þessar flugur. Meðal annars net fyrir glugga, há­tíðni­tæki sem eru fest utan­húss og sprey með afrísku sól­blómi.

„Ég fann það út að úr afríska sól­blóminu er unnið efni sem er ekki með neinu eitri í en allar flugur forðast það. Flugunum finnst vond lykt af því, en við finnum það ekki. En þetta er fáan­legt á spreyformi.“