Héðinn var ósáttur með blaðamann eftir ákveðna spurningu: „Mér var svolítið brugðið“

Héðinn Unn­steins­son, formaður Geðhjálp­ar, ræddi um tengsl geðsjúkdóma og ofbeldis í þættinum Dagmál sem má finna á vef Mbl.is. Hann segir að umrædd tengsl séu í raun og veru mýta.

„Þessi mýta um tengsl fólks með geðrænar áskoranir og ofbeldis, hún er ekki til staðar. Henni er viðhaldið í fjölmiðlum, þáttum og bíómyndum. Ég skil hugsanatenglin þarna á milli geðröskunar, stjórnleysis og ofbeldis. Ég sé alveg tengslin, en gögn segja okkur að þessi tengsl séu ekki til staðar.“

Þá fór Héðinn að ræða Barðavogsmálið svokallaða. Þar átti morð sér stað og hinn grunaði hefur verið tengdur við geðræn vandamál. Fjölmiðlafólk hafði samband við Héðinn vegna þess, en hann var ekki parsáttur.

„Mér var svolítið brugðið í þessu máli sem átti sér stað í póstnúmeri 104. Ákveðnir fjölmiðlar hringdu mikið í okkur eftir þennan atburð. Á einum tímapunkti þurfti ég að segja við blaðamann: „Heyrðu ég hef bara engar forsendur til að draga ályktanir í þessu máli. Ég bara veit þetta ekki,“ Það var þessi krafa sem endurspeglaðist í andsvari fjölmiðlamanneskjunnar um að þau yrðu að birta frétt um þetta. Jafnvel þó þau sjálf hefðu ekki forsendur til þess.“

Þá beindi Héðinn spurningu sinni að fjölmiðlum: „Þá finnst mér að fjölmiðlar verði að svara: „Hvert erum við þá komin í fjölmiðlun?““

„Þetta hefur ekki hjálpað. Það er að segja að þessari mýtu sé haldið á lofti.“ sagði Héðinn og bætti við að nú væri bara að bíða eftir rannsókn lögreglu um málið. „Þetta viðheldur fordómum og mismunun jafnvel,“