Haustið er rétt ó­komið: „Ekta hret með snjó­komu til fjalla“

Nú þegar 1. septem­ber er genginn í garð er ljóst að haustið og veturinn eru á næsta leiti. Einar Svein­björns­son, veður­fræðingur hjá Blika.is, segir að næstu daga muni kólna um­tals­vert.

„Hitinn hefur haldist til þessa á þokka­legu sumar­róli, en næstu daga kólnar um­tals­vert. Veður­stofan er þegar búin að gefa út gular við­varanir vegna lægðar fyrir austan land, seint á fimmtu­dag og á föstu­dag. Ekta hreta lægð sem fylgjast þarf grannt með,“ segir Einar á Face­book-síðu Bliku.

Blika spáir +1°C á föstu­dag við Mý­vatn og gæti hitinn farið niður undir frost­mark.

„Hins vegar gerir líkanið ráð fyrir ó­venju mikilli úr­komu. Veður­stofan er á svipuðu róli með hita, en heldur minni úr­komu í heild sinni. Væntan­lega fellur hún sem slydda eða bleytu­snjór. 40-50 mm úr­komu er engu að síður meira en 10% árs­úr­komu á þessum slóðum,“ segir hann.

Sam­kvæmt spá­korti Bliku klukkan sex að morgni föstu­dags má búast við „ekta hreti með snjókum til fjalla norðan­lands“ eins og það er orðað.

„Verst hvað það er snemma. Rétt er að setja þann fyrir­vara að fari lægðin heldur austar verður mun minna úr veðrinu hér. Allt verður að falla saman ef svo má segja.“

Eins og Einar bendir á hefur Veðurstofan gefið út gula viðvörun um norðan- og austanvert landið sem tekur gildi síðdegis á fimmtudag. Samkvæmt henni er útlit fyrir norðan hvassviðri eða storm, 15 til 20 metra á sekúndu og talsverða úrkomu.

„Hiti verður nærri frostmarki og því líklegt að úrkoma falli sem slydda ofan 200 metra yfir sjávarmáls og sem snjókoma ofan 400 metra. Veðrið gæti skapað vandræði fyrir búfénaði, einkum kindum til fjalla. Líklegt er að færð spillist á fjallvegum og ferðalangar á svæðinu ættu að huga vel að veðurspám,“ segir á vef Veðurstofu Íslands.