Haukur Viðar sér fram á breytta tíma á fast­eigna­markaði: „Það sem kann að koma mörgum í opna skjöldu“

Haukur Viðar Al­freðs­son, doktors­nemi í hag­fræði, sem skrifar reglu­lega pistla um fast­eigna­sala, segir fast­eigna­markaðinn vera á vendi­punkti í nýrri grein á Vísi.

„Ellefu hundruð kaup­samningar á mánuði. Það er meðal­fjöldi fast­eigna­kaup­samninga sem þing­lýst er á mánuði, hvort sem við horfum á það sem af er þessu ári eða meðal­tal seinast liðinna ára[1]. Á sama tíma eru hér á landi rúm­lega sex hundruð lög­giltir fast­eigna­salar með vel rúm­lega hundrað aðra sam­starfs­menn og þá eru ó­taldir þeir lög­menn sem gátu fengið réttindi fast­eigna­sala með lög­manns­réttindum sínum til ársins 2015[2]. Því má segja að hver einasti kaup­samningur þurfi að standa undir mánaðar­launum staks starfs­manns auk alls kostnaðar ef ekki á að fækka í starfs­stéttinni,“ skrifar Haukur.

„Út­reikningurinn gengur þó alveg upp. Meðal sölu­laun fast­eigna­sala eru um 2% sam­kvæmt gjald­skrá en aldrei lægri en 1% jafn­vel ef hlustað er á svart­sýnustu fast­eigna­sala. Meðal kaup­verð fast­eigna á þessu ári hefur svo verið rúm­lega átta­tíu og sjö milljónir króna. Það þýðir að sölu­laun fyrir sölu á meðal eign eru sirka á bilinu 0,9 – 1,8 milljónir króna. Í stuttu máli erum við því með fast­eigna­markað sem veltir um hundrað milljörðum á mánuði, greiðir fyrir það milljarð eða tvo í sölu­laun og heldur þannig uppi þúsund manna starfs­stétt milli­göngu manna. En er hér ekki um um­tals­vert ó­hag­ræði að ræða?“

Til þess að selja fast­eign þarf í grófum dráttum að:

  1. Taka saman grunn­upp­lýsingar um eignina.
  2. Verð­meta, mynda, aug­lýsa og sýna eignina.
  3. Taka á móti kaup­til­boði og vinna tengd sölu skjöl.

„Fyrsta og þriðja liðinn má leysa nær al­gjör­lega raf­rænt með sjálf­virkum ferlum sem tala beint við við­komandi stofnanir (t.d. þjónustu­aðila varðandi raf­magn og hita, lána­stofnanir varðandi á­hvílandi skuldir, greiðslu­mat, skil­yrt veð­leyfi og opin­bera aðila varðandi gjöld, skjöl og þing­lýsingar). Það eina sem ekki er hægt að leysa með sjálf­virkri skjala­gerð er það sem seljandi og kaupandi verða að fylla inn sjálfir, t.d. kaup­til­boð og lýsing eignar. Þættina í öðrum lið má að miklu leiti leysa sjálf­virkt eða í öllu falli án þess að kaupa sér­taka þjónustu til þess. Aug­lýsinga­gerð mun ein­fald­lega vera sjálf­virk í þeim kerfum sem sjálf­virkja skjala­gerðina í liðum eitt og þrjú. Mynda­taka og sýning á eign mun vera mörgum fært að gera upp á sitt ein­dæmi saman­ber t.d. hversu vel það gengur á AirBnB. Verð­mat er að miklu leiti hægt að gera sjálf­virkt fyrir flestar eignir með grunn­upp­lýsingum um eign auk að­lögunar fyrir sér­tæka liði, en það er þó senni­lega sá liður sem á eftir að lifa lengst í um­sjá mann­fólks en ekki for­rits,“ skrifar Haukur.

„Ef þessi lýsing virkar of ein­föld eða ó­þarf­lega brött er gott að rifja upp að video­leigur heyra sögunni til vegna þess að al­menningur notar í dag streymis­veitur. Ef video­leigurnar þykja ekki saman­burðar­hæfar við fast­eigna­markaðinn þá má benda á að fyrir nokkrum ára­tugum tók upp­gjör við­skipta dagsins í kaup­höllum jafn langan tíma og starfs­dagur kaup­hallarinnar var, en svo leysti tölvu­tæknin það verk á ör­fáum sekúndum. Í fram­haldi af því hvarf kaup­hallar­gólfið með öllu og í dag er það svo að al­menningur hefur að­gang að mörgum mis­munandi kaup­höllum í gegnum símann sinn á auga­bragði. Al­menningi, sér­stak­lega ungu fólki, dettur ekki í hug að notast við banka eða aðra sem milli­göngu­menn í slíkum fjár­festingum. Samt eru þær fjár­festingar ó­líkt flóknari og sér­hæfðari en kaup og sala á stein­steypu. Talandi um banka þá hefur starf­semi þeirra ein­mitt gjör­breyst með til­komu inter­netsins, enda nota gott sem allir lands­menn net­banka og úti­bú því gott sem ó­þörf. Við­skipti eru ein­fald­lega að verða sí­fellt lausari við ó­þarfa milli­liði.“

„Við stöndum því frammi fyrir því að hér sé markaður sem bíði eftir því að vera upp­færður að tölvu­tækni og þægindum nú­tímans. Hvatinn er vissu­lega til staðar, hagnaðar vonin sem bíður í loftinu eru fleiri milljarðar. Þessi markaðs­breyting mun verða neyt­endum til mikilla hags­bóta, bæði varðandi al­menn þægindi sölu- og kaup­ferlis en enn fremur í verðum. Fyrsta sjálf­virka lausnin á markað mun keppa við fast­eigna­sala með verðum sem fast­eigna­salar geta ekki keppt við í nú­verandi mynd. Í fram­haldi þurfa fast­eigna­salar að að­lagast breyttum markaði. Þeir sem ætla starfa á­fram munu taka upp sjálf­virku kerfin og byggja rekstur sinn á að veita við­bótar­þjónustur á föstu gjaldi sam­bæri­legt við hvernig aðrar sér­fræði­þjónustu eru seldar. Til lengri tíma mun sam­keppnin um sjálf­virku kerfin keyra verðin enn neðar, sí­fellt minni partur markaðsins mun reiða sig á þjónustur fast­eigna­sala og kostnaðurinn við að selja fast­eign verður talin í þúsundum en ekki hundruðum þúsunda eða milljónum.“

„Fast­eigna­markaðurinn er á vendi­punkti, en það sem kann að koma mörgum í opna skjöldu er að vendi­punkturinn er núna en ekki eftir ein­hver ár. Fyrstu sölur al­mennings á eigin fast­eignum í gegnum slík kerfi munu gerast fyrir árs­lok og innan þriggja ára munu milljón­króna sölu­þóknanir og ó­eðli­leg vinnu­brögð fast­eigna­sala vera jafn­vel fjar­læg al­menningi og skuld fyrir að skila videospólu of seint á video­leiguna,“ skrifar Haukur að lokum.