Haukur Viðar Alfreðsson með áminningu til kvenna: „Þið munið sitja uppi með þá bakveika“

Haukur Viðar Alfreðsson, söngvari Morðingjanna, fyrrverandi blaðamaður og lífstíls gúrú er með skondna áminningu á Twitter til kvenna, sem augljóslega er sett fram í gríni.

„Munið bara, þið konur sem laðist að hávöxnum körlum, að þið munið sitja uppi með þá bakveika, gamla og geðvonda löngu eftir að kynþokkinn yfirgefur þá,“ skrifar Haukur.

„Á sama tíma þeysumst við naggarnir bísperrtir um BYKO langt fram á tíræðisaldur. Skrækir að vísu, en alltaf í stuði.“