„Ótal margir hafa óæskilegar skoðanir, en rétt þeirra til þess að tjá þær þarf að verja fram í rauðan dauðann,“ segir Haukur Örn Birgisson lögfræðingur í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
Pistill Hauks hefur vakið talsverða athygli, en ætla má að kveikjan að honum sé frumvarp til breytinga á hegningarlögum sem lagt var fram fyrir skemmstu. Nái það fram að ganga getur það varðað tveggja ára fangelsi að afneita, gera lítið úr eða réttlæta helförina. Haukur nefnir fleiri mál sem tengjast þessari þróun.
„Það færist í vöxt að vilja úthýsa þeim sem hafa hættulegar, rangar, óskynsamlegar eða jafnvel bara heimskulegar skoðanir. Smátt og smátt eru skoðanirnar og fólkið sem þær hefur úthrópað, svívirt, smánað og bannfært. Þetta verður æ algengara og eðlilegra með hverju árinu sem líður. Við hættum að malda í móinn og samþykkjum útskúfunina svo lengi sem hún beinist ekki að okkur sjálfum.“
Haukur segir að sumt af þessu virðist sárasaklaust og nefnir hann máli sínu til stuðnings atvik þegar sígaretta var fjarlægð úr munnviki Bubba Morthens í kynningarefni Borgarleikhússins.
„Bjórdósir með mynd af reykingamanni eru fjarlægðar úr Vínbúðunum. Maður getur þó varla annað en brosað yfir íroníunni í því að ríkið banni ljósmynd af reykjandi manni utan á áfengisdós, í ríkisverslun sem selur einungis áfengi og tóbak.“
Haukur segir að svo haldi þetta áfram og vindi upp á sig. Fólki sem gagnrýnir sóttvarnareglur séu gerðir upp annarlegir hvatar, forseti Bandaríkjanna sé látinn hverfa af samfélagsmiðlum og nú ætli íslenskir þingmenn að setja fólk sem talar heimskulega um Helförina í tveggja ára fangelsi.
„Í nafni umburðarlyndis og manngæsku stígur fram fólk, með ríkari réttlætiskennd en aðrir, sem vill hafa vit fyrir hinum. Það virðist þekkja betur en aðrir hvaða skoðanir eru rangar og segja skerðingarnar nauðsynlegar til verndar þeim sem eiga undir högg að sækja. Afleiðingin er sú að tjáningarfrelsið sjálft á undir högg að sækja.“
Haukur bendir á að ótal margir hafi óæskilegar skoðanir en rétt þeirra til að tjá þær þurfi að verja fram í rauðan dauðann.
„Í tjáningarfrelsinu felst nefnilega einnig rétturinn til þess að hafa rangt fyrir sér. Að standa vörð um tjáningarfrelsið, felur í sér að standa vörð um réttinn sjálfan en ekki skoðanirnar.“