„Eins og aðrir þá fylgdist ég með forsetakosningunum síðustu daga. Mér þykir leitt að sjá að þú verðir ekki áfram forsetafrú en græt það ekkert sérstaklega að eiginmaður þinn verði ekki áfram forseti. Þetta var komið gott hjá honum.“
Þetta skrifar Haukur Örn Birgisson, lögfræðingur og pistlahöfundur, í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
Haukur skrifar um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, en eins og kunnugt er hafði Joe Biden betur gegn Donald Trump. Talningu atkvæða er að vísu ekki að fullu lokið og Donald Trump hefur hótað því að fara fyrir dómstóla. Niðurstaðan virðist engu að síður nokkuð skýr.
„Þótt ég hafi ekki kosningarétt í Bandaríkjunum hefði ég hugsanlega kosið Donald fyrir fjórum árum en í nýafstöðnum kosningum hefði það hins vegar ekki hvarflað að mér. Mér finnst ekki mikið til Bidens koma en mér einfaldlega ofbauð framferði Donalds í valdastöðu,“ segir Haukur í pistli sínum.
Hann segir að svo allrar sanngirni sé gætt þá hafi Trump gert marga fína hluti á þeim fjórum árum sem hann stýrði landinu.
„Hann lækkaði skatta, einfaldaði regluverkið og gerði ekki eina einustu innrás í annað ríki, svo dæmi séu nefnd. Afrek hans rötuðu þó sjaldnast á síður fjölmiðlanna og það verður að segjast eins og er að eiginmaður þinn naut alls ekki sannmælis í fjölmiðlum vestan hafs,“ segir Haukur og bætir við að það hafi að mörgu leyti verið honum sjálfum að kenna.
„Þegar maður sýnir öðru fólki óvirðingu, kemur fram af hroka og er laus við alla auðmýkt í störfum sínum þá fær maður það stundum óþvegið á endanum. Þrátt fyrir það naut hann hylli fleiri kjósenda nú heldur en fyrir fjórum árum, sem hlýtur að teljast merkilegt.“
Haukur Örn endar pistil sinn á þeim orðum að Trump þurfi að sýna manndóm og játa sig sigraðan.
„Þetta er búið. Veit þú ræðir við hann. Nú er Hvíta húsið komið með nýja leigjendur og við taka fasteignahugleiðingar hjá ykkur hjónakornunum. Hvort sem það verður saman eða hvort í sínu lagi þá óska ég ykkur alls hins besta.
Kveðja, Haukur.“