Haukur skoðaði gosið á sunnudag: „Ekki skánaði geðið þegar ég festist fyrir aftan eitthvert idjót“

Haukur Örn Birgisson, lögfræðingur og pistlahöfundur, skoðaði gosið á sunnudag eins og ef til vill þúsundir annarra Íslendinga. Haukur, sem þykir með skemmtilegustu pistlahöfundum landsins, skrifar um upplifun sína í bakþönkum Fréttablaðsins í dag og óhætt að segja að um skemmtilega lesningu sé að ræða.

„Mánudagar eiga það til að vera erfiðir. Fyrir miðaldra karlmann í yfirvigt má segja að í dag sé mánudagur allra mánudaga. Úrvinda rita ég þennan pistil eftir að hafa gengið upp að eldgosinu í gærkvöldi og komið heim um miðja nótt – kaldur, hrakinn og alveg jafn þungur,“ segir hann.

Haukur segir að það hafi ekki verið hægt að sleppa því að skoða gosið. Bendir hann á að undanfarna viku hafi hann fylgst með öllum sem hann þekkir birta myndir á Facebook af gríðarlegri ákefð.

„Nema hvað, ég hrökklaðist þessa grýttu leið ásamt þúsundum annarra sem fæstir voru klæddir eftir aðstæðum. Eftir því sem maður verður miðaldraðri þá fer maður ósjálfrátt að gera fleiri og alvarlegri athugasemdir við hegðun annarra. Ég heyrði hnussið í sjálfum mér þegar ég gekk fram hjá menntaskólastúlkum í kálfasíðum leggings-gallabuxum og flatbotna strigaskóm og ekki skánaði geðið þegar ég festist fyrir aftan eitthvert idjót sem bar utan á sér hátalarakerfi í hæstu stillingu með lagalistanum úr Hringadróttinssögu. „Þetta unga fólk!“ muldraði ég í hljóði.“

Haukur segist hafa horft í myrkrinu á mannmergðina sjúga upp í nefið og hnerra framan í samferðafólk. „Á meðan hver sófakartaflan á fætur annarri hlunkaðist á rassgatið á ísilagðri gönguleiðinni, með óafturkræfum jarðvegsbreytingum í för með sér, sem aldrei fóru í umhverfismat.“

Haukur segir að endingu að sóttvarnalög hafi ekki verið ofarlega í huga göngugarpa þetta kvöld, þrátt fyrir krúttleg skilti sem minntu gesti á tveggja metra regluna.

„Af ótta við sóttvarnasektir þorði ég ekki að hjálpa þeim slösuðu á fætur. En að öllu þessu slepptu þá var upplifunin einstök. Fegurðin stórkostleg. Eins og beint úr andans efstu hillu.“