Haukur skellti sér til út­landa: „Ég get ekki sagt að ég hlakki til komunnar á Kefla­víkur­flug­völl“

„Í þessum skrifuðu orðum sit ég á al­þjóða­flug­velli um­kringdur fólki með and­lits­grímur,“ segir Haukur Örn Birgis­son, lög­fræðingur og pistla­höfundur, í bak­þönkum Frétta­blaðsins í dag.

Haukur skellti sér til út­landa á dögunum í fyrsta skipti síðan í febrúar síðast­liðnum.

„Ég hlusta á minn hefð­bundna Spoti­fy-laga­lista, Ferða­lög á ferða­lögum. Ég hef ekki ferðast á milli landa síðan í febrúar, sem er lík­legast lengsti tími sem liðið hefur á milli ferða­laga í heilan ára­tug. Það liggur við að ég hafi verið farinn að sakna öryggis­leitarinnar. Að taka af sér beltið, rífa snyrti­vörurnar upp úr hand­far­angrinum og skella þeim á bakkann án þess að næsti maður komi auga á ó­hreinu nær­buxurnar er alltaf jafn niður­lægjandi,“ segir Haukur.

Hann segir að frá því að CO­VID kynnti sig til leiks hafi hann ekki farið í skimun.

„Hef bara heyrt af því hræði­legar sögur. Eyrnapinna á stærð við skíðastaf er troðið svo langt upp í nösina að engu líkara er en að sækja eigi saur­sýni. Ég get ekki sagt að ég hlakki til komunnar á Kefla­víkur­flug­völl. Þaðan verð ég svo sendur í út­legð, þótt hún fari fram á eigin heimili. Að­greindur frá fjöl­skyldu minni má ég dúsa heima og finna mér eitt­hvað til dundurs í fimm daga,“ segir hann.

Haukur rifjar svo upp mál ungu stúlknanna sem hittu ensku knatt­spyrnu­mennina á hótel­her­bergi á dögunum. Fjöl­miðlar keppist við að flytja af þessu fréttir, eins og þetta sé ekki eðli­legasti hlutur í heimi.

„Kommenta­kerfin eru yfir­full af hneykslunar­gjörnu fólki, sem kemur þetta auð­vitað ekkert við. Fólkið virðist brjálað yfir því að tveggja metra reglan hafi verið brotin, þótt það sjálft brjóti regluna tíu sinnum á dag. Ég vona að eitt­hvað nýtt verði að frétta næstu fimm daga, þar til borað verður í nefið á nýjan leik.“

Þess má geta að Ís­land er það land innan Evrópu­sam­bandsins og EES-svæðisins sem er með ströngustu skil­yrðin fyrir komu ferða­manna til landsins. Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag en upp­lýsingarnar má finna á raf­rænu korti á vef­síðu á vegum Evrópu­sam­bandsins. Þar er löndunum skipt í rauð, gul eða græn svæði í takt við tak­markanirnar. Ís­land er eina landið sem er með rauða merkingu en öllum ferða­mönnum er skylt að sæta fjór­tán daga sótt­kví eða undir­gangast tvær skimanir fyrir kóróna­veirunni auk fimm daga sótt­kvíar á milli prófa.