Haukur Viðar Alfreðsson, doktorsnemi í hagfræði, segir að seljendur, kaupendur og fasteignasalar standi nú frammi fyrir breyttum veruleika. Haukur hefur undanfarin misseri fjallað ítarlega um meinta sjálftöku fasteignasala í fasteignaviðskiptum og kallað eftir breytingum þar á.
Haukur hefur spáð fyrir um breytingar á fasteignamarkaðnum og fullyrðir að þær breytingar séu komnar og að dagar sjálftöku við fasteignasölu séu liðnir.
Í morgun var greint frá því að Kaupstaður fasteignasala ehf. hefði sett á laggirnar nýjan valkost í fasteignaviðskiptum. Þetta gerir einstaklingum mögulegt að selja fasteignir sjálfir og milliliðalaust á netinu með því að nýta nethugbúnaðinn eCASA. Kaupendur fasteigna geta svo með auðveldum og gagnsæjum hætti gert milliliðalaust tilboð í fasteign á netinu. Sjá nánar hér.
„Stórt skilvirkni og framfara skref hefur verið stigið á fasteignasölumarkaðnum, en nú með nýrri þróun í hugbúnaði hefur umfang vinnu við sölu fasteigna minnkað verulega. Því er náð með því að nýta sjálfvirk samskipti við stofnanir og sjálfvirka skjalagerð í stað þess að mannshöndin annist verkin. En hvað þýðir það fyrir almenning, fasteignasala og samfélagið,“ spyr hann í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun, en yfirskrift greinarinnar er: Viltu spara milljón?
Haukur segir að fyrir seljendur fasteigna liggi stærstu tækifærin í því að geta selt eigin fasteign með aðstoð tölvutækninnar í stað þess að styðjast við fasteignasala. Þannig geti seljandinn sparað sér vægast sagt kostnaðarsama sérfræðiþjónustu og á sama tíma losna kaupendur við sinn kostnað af fasteignasala.
„Þá eykst áhætta seljenda fasteigna ekki með þessari söluaðferð nema þá síður sé, enda einskorðast gott sem öll ágreiningsmál við fasteignasölu við ágreining milli seljenda og kaupanda án þess að fasteignasali beri neina ábyrgð, auk þess að núverandi uppsetning söluþóknanna fasteignasala er þannig háttað að mikil áhætta er á því að þeir vinni fremur að eigin hag en hag seljanda eða kaupanda (Sjá fyrri skrif mín: Hér , hér , hér og hér).“
Haukur segir að þetta þýði ekki að dagar fasteignasala séu taldir.
„Alls ekki. Séðir fasteignasalar munu bregðast við breyttum tímum með því að taka þátt í breytingunum. Þannig minnkar umfang vinnu þeirra verulega og þeir geta einbeitt sér að því að veita þá sérfræðiþekkingu sem sker þá úr hópnum í staðinn, og þar sem umfang vinnu þeirra minnkar verulega geta þeir verðlagt þjónustu sína á samkeppnishæfari máta. Þannig lifa séðir fasteignasalar áfram góðu lífi en á sama tíma vænkast hagur þeirra seljanda sem kjósa áfram að kaupa þjónustu fasteignasala, þó ekki til jafns við aukin hag þeirra sem kjósa að selja sjálfir.“
Í grein sinni bendir Haukur á að starf fasteignasala feli í sér ýmis sérfræðistörf og mikið af almennri handavinnu.
„Margir íslenskir fasteignasalar starfa svo hjá fasteignasölum sem taka væna sneið af tekjum þeirra gegn því að annast hluta þessarar almennu handavinnu og mögulega veita þeim aðgang að ýmsum fasteignasala forritum og eða annarri þjónustu eftir atvikum. Nú er tæknin hins vegar orðin þannig að gott sem allri almennri handavinnu fasteignasala hefur verið útrýmt og þeim veitt öll tól sem þarf til að sinna fasteignasölu á skilvirkara og einfaldara formi en þekkst hefur hingað til. Í reynd má segja að hvaða löggildi fasteignasali sem er sem hefur aðgang að tölvu geti nú starfrækt eigin fasteignasölu án fasts kostnaðar og án þess að annar fasteignasali hirði stóran hluta teknanna. Spurningin sem þessir fasteignasalar standa frammi er því einföld: Hvort vilt þú að tekjurnar sem þú aflar renni í þinn vasa eða vasa einhvers annars?“
Haukur segir ljóst að ekki allir geti grætt á markaðsbreytingum sem þessum. Ljóst sé að seljendur og kaupendur fasteigna séu að fara græða verulega. Sömuleiðis græði samfélagið á aukinni skilvirkni og þannig aukinni framleiðslugetu.
„Þá munu fasteignasalarnir sem kjósa að breytast með breyttum tímum og kjósa að fá stærri hluta teknanna sem þeir afla í eigin vasa einnig græða. En hætt er við því að þeir fasteignasalar sem hafa sínar tekjur af tekjuöflun annarra fasteignasala, sem og þeir aðilar sem hafa viðhaldið fákeppni og verðsamráði öllum nema sjálfum sér í óhag árum saman séu að fara borga brúsann.