Haukur sakar fólk um að stíga viljandi í hunda­skít og birta myndir á Face­book

Haukur Örn Birgis­son lög­fræðingur ætlaði sér að fjalla um kóróna­veiruna í pistli sínum í Frétta­blaðinu í dag. Hann óttaðist að þá myndi ein­hver móðgast, fyrir hönd annarra vegna skrifanna. Haukur Örn segir:

„Það er til allt­of mikið af slíku fólki. Fólki sem stígur viljandi í hunda­skít, til þess eins að gera úr því stór­mál að hunda­eig­endur þrífi ekki upp eftir hundana sína. Svo birtir þetta fólk ljós­myndir af ó­dæðinu á hverfis­síðum sam­fé­lags­miðl­anna, til þess að færa sönnur á mál sitt.“

Haukur Örn bætir við:

„Ég á­kvað að sleppa því að skrifa um veiruna. Það er of snemmt.“

Þá fagnar Haukur sigri Daða í Euro­vision og hefur að lokum þetta að segja:

„Að lokum: Hættið þegar í stað að nota orðið Evró­vi­sjón – það er hræði­legt orð­skrípi.“