Haukur óttast ekki dauðann: „Ef ég drepst hérna þá bara er það hið besta“

Fjölmiðlamaðurinn Haukur Hauksson er staddur um þessar mundir í Úkraínu í ferð fyrir fjölmiðlafólk í boði rússneskra stjórnvalda. Rætt er við Hauk í Fréttablaðinu í dag en þegar blaðið ræddi við hann var hann staddur í Donetsk-héraði í austurhluta Úkraínu.

Haukur er sjálfur rússneskumælandi og hefur verið búsettur í Moskvu um áratugaskeið.

„Þetta eru ferðir sem eru skipu­lagðar af frétta­manna­þjónustu varnar­mála­ráðu­neytis Rúss­lands fyrir inn­lenda og er­lenda frétta­menn til að sýna þeim hvernig málin standa frá fyrstu hendi. Reyndar tekur megin­straums pressan ekki þátt í þessu, það er að segja BBC, CNN, Reuters, Guardian og þeir sem yfir­leitt er vitnað í af öðrum,“ segir Haukur í Fréttablaðinu.

Eðli málsins samkvæmt er Haukur hallur undir Rússa og segir hann að Úkraína hafi þróast út í ákveðið bananalýðveldi Vesturlanda. Hann mælir þó ekki stríðinu bót eða réttlætir það en segir að fólk, ekki síst stjórnmálamenn og fólk í æðstu stöðum, verði að kynna sér hlutina og hvernig þeir byrjuðu.

„For­leikurinn að þessu er mjög grimmt borgara­stríð þar sem stjórnar­herinn var með stór­skota­liðs loft­á­rásir og annað á eigin borgara þar sem hvorki meira né minna en 14.000 manns voru drepnir. En hræsni vestur­landa og ís­lenskra stjórn­valda liggur í því að það hefur enginn neinn á­huga á því.“

Haukur segir það skrýtna tilfinningu að vera úti á götu, hlustandi á stöðugt sírenuvæl og jafnvel verða vitni að sprengjuregni.

„Það hafa dáið fleiri manns hérna síðasta sólar­hring. Við sáum til dæmis skóla sem var sprengdur í loft upp,“ segir hann í viðtalinu en Haukur kom við í Maríupol sem er nánast rústir einar.

„Asovstal, þarna er púður, lík­lykt og saggi í lofti, blautar dýnur og annað. Þú ert að sjá við hvað þetta fólk er upp alið,“ segir Haukur.

Haukur segist ekki vera hræddur þó hann sé á mjög hættulegu svæði.

„Manns dauði kemur ein­hvern tíma. Ég tel bara nauð­syn­legt að menn viti og þekki inn á þetta. Það er líka á­byrgðar­leysi að kynna sér ekki hlutina ofan í kjölinn. For­sagan og for­leikurinn að þessu er tra­gedía. En mín sam­viska og hrein og ef ég drepst hérna þá bara er það hið besta.“

Viðtalið við Hauk má lesa í heild sinni hér.