Haukur Örn: „Hann virtist sýna framhjáhaldi mínu dæmalausan skilning“

Haukur Örn Birgisson, lögfræðingur og formaður Golfsambands Íslands, hefur fyrir löngu skipað sér sess meðal skemmtilegustu pistlahöfunda landsins.

Haukur Örn lætur gamminn geisa í bakþönkum Fréttablaðsins og slær hann á létta strengi í bakþönkum blaðsins í dag þar sem hann skrifar meðal annars um hárskerana sína.

„Sagt er að maður velji sér vini en ekki fjölskyldu. Þannig getur maður orðið fyrir því ansans óláni að sitja uppi með vonlausa ættingja til lífstíðar. Erfitt er þó að vorkenna þeim sem halda trúnað við vini sem ítrekað bregðast á ögurstundu eða misnota traustið. Á lífsleiðinni stofnar maður til fjölmargra trúnaðarsambanda við vini, maka, vinnufélaga og viðskiptafélaga. Allt mikilvæg sambönd en eitt er þó öllum öðrum sterkara,“ segir Haukur og á þar við sambandið við manneskjurnar sem hafa klippt hár hans, en aðeins fjórar hafa séð um það síðan hann var barn.

„Sú fyrsta fór á eftirlaun, næsta hætti eftir barnsburð, sá þriðji klippti mig þar til hann slasaðist á reiðhjóli og það var þá sem hún Una tók við mér, munaðarlausum manninum,“ segir Haukur og bætir við að í fyrstu hafi þetta bara átt að vera tímabundið samband, eða þar til hans fyrrverandi, eins og Haukur orðar það, jafnaði sig í viðbeininu.

„Hins vegar þróaðist samband okkar Unu með hverri heimsókninni. Eins og tíðkast milli kúnna og hárskera þá skiptumst við á lífsskoðunum, fjölskyldusögum, ræddum heimsmálin og íþróttir. Samband okkar varð sífellt nánara og endaði með því að hún varð ófrísk. Alls ekki af mínum völdum, vel á minnst,“ segir hann en þá voru góð ráð dýr og leitaði hann því til síns fyrrverandi.

„Ég var þakklátur mínum fyrrverandi þegar hann féllst á að taka aftur við mér. Hann virtist sýna framhjáhaldi mínu dæmalausan skilning. Fyrir skemmstu dró þó til tíðinda og hann dömpaði mér fyrirvaralaust. Sagðist ætla að leggja skærin á hilluna, rétt miðaldra maðurinn. Ekki veit ég hversu stóran þátt ég átti í ákvörðun hans en fyrir mann eins mig, sem þjakaður er af íhaldssemi, er erfitt að skipta aftur um klippara. Þá er nú gott að Una sé aftur mætt til starfa.“