Haukur Örn Birgisson, bakþankahöfundur Fréttablaðsins, segir að þó að nú séu óvissutímar sé mikilvægt að tapa ekki gleðinni. Samkomubann hefur nú verið í gildi hér á landi í einn og hálfan sólarhring vegna COVID-19.
Haukur er þekktur fyrir létt og skemmtileg skrif og pistill hans í dag er engin undantekning.
„Ég er líklegast eini íbúi Garðabæjar sem ekki fer á skíði. Ég var því pollrólegur yfir því að smitast af kórónaveirunni. Hún lagðist bara á skíðafólk. Nú virðist hún hins vegar eitthvað vera farin að dreifa sér, blessunin. Þá er nú aldeilis gott að helmingur landsmanna hefur lagt stund á veirufræði, reyndar flestir á Youtube,“ segir Haukur í byrjun pistilsins.
Hann segir að þessir svokölluðu sérfræðingar hafi fundið vettvang fyrir menntun sína og eru samfélagsmiðlarnir fullir af misvísindalegum kenningum þeirra. Sumar þeirra eigi sér pólitískar rætur.
„Donald Trump lokaði Bandaríkjunum og fékk bágt fyrir. Þegar Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, greip til sömu ráðstafana þá þótti hún taka snilldarlega á málunum. Maður veit varla í hvorn fótinn maður á að stíga þessa dagana.“
Haukur segir mikilvægt að halda í gleðina og nefnir hann hámhorf á Netflix og gamla íþróttaviðburði og hömstrun matvæla og salernispappírs máli sínu til stuðnings. „Pása frá nammibörum og leikskólanjálg gerir okkur ef laust gott. Ég er á borði 2.386 í CandyCrush og sé nú loksins fram á að geta klárað leikinn. Get þá hætt að laumuspila hann.“
Haukur segir enn fremur að allt saman ætti að fara vel, ef við fylgjum ákveðnum leiðbeiningum.
„Á meðan við gætum að handþvottinum, drögum úr óþarfa mannamótum og andlitskáfi og hættum að sleikja lyftutakkana og rúllustigahandriðið í Kringlunni þá ætti þetta allt saman að fara vel.“
Hann segir að tækniframfarir síðustu ára séu ótrúlegar. Og til marks um það að nú sé hægt að greiða með kreditkorti hjá sýslumanni þá sé ekkert ómögulegt.
„Ástandið verður væntanlega verra áður en það verður betra en það mun birta til – vorið kemur. Því til sönnunar þá sást lóan um helgina á Höfn í Hornafirði. Við hin fáum að sjá hana eftir tæpar tvær vikur þegar hún losnar úr sóttkví.“