Haukur Örn Birgisson, lögfræðingur og pistlahöfundur, gagnrýnir þau ofsafengnu viðbrögð sem Þórarinn Ævarsson, eigandi Spaðans, fékk um helgina. Þórarinn lýsti því yfir berum orðum í viðtali við Morgunblaðið að hann ætlaði sér að keyra sinn helsta keppinaut, pizzukeðjuna Dominos, í þrot á næstu árum.
Haukur segir í bakþönkum Fréttablaðsins í dag að það sé orðinn daglegur viðburður að fólk sármóðgist, yfirleitt fyrir hönd einhverra allt annarra, yfir því að gert hafi verið á meintan hlut þeirra síðarnefndu. Hann nefnir bandaríska leikarann Hank Azaria í þessu samhengi, en Hank ljáði indverska verslunareigandanum Apu í Simpson-þáttunum rödd sína. Þótti ýmsum svívirðilegt að Bandaríkjamaður skyldi dirfast að leika Indverja í skáldaðri teiknimynd.
Sjálfur hefur Hank sagt að hluta af honum líði eins og hann þurfi að fara til hverrar einustu indversku manneskju í landinu og biðja hana persónulega afsökunar. Haukur er kominn með nóg af þessari þróun.
„Hópurinn sem krefst afsagna og afsökunar fer fram í nafni sinnar eigin ríku réttlætiskenndar, sem hlýtur að vera eitthvert furðulegasta sjálfshól sem til er. Þótt flestir sjái í gegnum yfirborðskennt fjasið þá nenna fæstir að mótmæla því – með þeim afleiðingum að móðgunarblætið heldur áfram að grassera,“ segir Haukur sem rifjar svo upp títtnefnd ummæli Þórarins á Spaðanum.
„Um helgina þurfti eigandi pítsustaðarins Spaðans að biðjast afsökunar á því að hafa sagst ætla að keyra Domino’s í þrot á næstu árum. Pitsustaðurinn var því beðinn afsökunar, svona eins og fyrirtækið hefði tilfinningar. Ætli íþróttafólk þurfi nú að lýsa því yfir að það hafi alls ekki í hyggju að sigra keppinauta sína?“
Haukur segir að þegar svona er komið fyrir okkur sé erfitt að skilja hvers vegna Húsvíkingar séu ekki froðufellandi af reiði yfir því að Will Farrell hafi vogað sér að leika Húsvíking á sama tíma og fjölda leikara megi finna á Stór-Skjálfandasvæðinu.
„Þótt ég búi í Garðabæ þá krefst ég afsökunar frá Hollywood. Það einfaldlega gengur ekki að leikarar skuli fá að bregða sér í hlutverk annarra. Þetta hljóta allir með réttlætiskennd að sjá.“