Haukur Örn Birgisson, bakþankahöfundur Fréttablaðsins, er ekki sáttur við þær leiðir sem íslensk yfirvöld hafa ákveðið að fara í baráttunni gegn kórónuveirunni.
Í pistli á baksíðu Fréttablaðsins í dag líkir hann Íslandi við Norður-Kóreu.
„Til að syrgja Kim Jong-il, fyrrverandi leiðtoga Norður-Kóreu, sem lést fyrir sléttum tíu árum, hafa þarlend stjórnvöld bannað skemmtanir og næstu daga mega þegnar landsins ekki einu sinni hlæja. Ætla má að lögregla þar í landi standi nú í ströngu við að elta uppi fólk sem sést með bros á vör,“ segir hann og vísar svo í fréttir helgarinnar þar sem meðal annars var sagt frá því að lögreglumenn hefðu átt í fullu fangi með að framfylgja því að sóttvarnarlög væru ekki brotin.
Sagði meðal annars aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að fólk hafi verið að dansa, það þyrfti að taka á því.
Haukur segir að þetta hafi ekki verið frétt í ríkisfjölmiðli Norður-Kóreu eins og margir kynnu að halda heldur íslenska ríkisfjölmiðlinum.
„Það er því ekki bara í Norður-Kóreu sem lögregluyfirvöld þurfa að „taka á“ borgurum sem leyfa sér að stíga dans og nú eru sams konar fréttir fluttar af lögregluaðgerðum beggja landa. Það er hrollvekjandi staðreynd,“ segir hann og heldur áfram:
„Þríbólusett fólk með neikvætt hraðpróf í farteskinu má eiga von á því að lögregla hafi af því afskipti ef það skemmtir sé of mikið. Og í landi „hinna frjálsu“ sendi Hvíta húsið frá sér eftirfarandi yfirlýsingu fyrir fjórum dögum: „Til ykkar óbólusettu, þið eruð að horfa fram á vetur af alvarlegum veikindum og dauða fyrir ykkur, fjölskyldur ykkar og sjúkrahúsin sem þið munuð senn fylla.“ Vá! Er Trump enn forseti?“
Hauki líst illa á þessa þróun:
„Sagt er að vegurinn til heljar sé oftast varðaður góðum ásetningi. Barátta við veiru hefur nú gengið lengra og lengur en nokkurn hafði órað fyrir í upphafi. Vonandi vaknar heimsbyggðin ekki of seint upp af þessum vonda draumi og kjánalegar fréttir frá Norður-Kóreu einskorðast við þann hluta heimsins.“