Haukur leiðréttir Eddu Falak: Ólíklegt að þetta sé rétta leiðin áfram

Haukur Örn Birgisson, lögfræðingur og pistlahöfundur, er ósammála því sem fram kom í viðtali Kastljóss við Eddu Falak, fjármálafræðing og áhrifavald, á dögunum.

Edda var þar mætt til að ræða fjölda frásagna um kynferðislegt ofbeldi og hver réttu viðbrögðin væru í slíkum málum.

„Einn af svokölluðum áhrifavöldum samfélagsmiðlanna sagði á dögunum í Kastljóssviðtali, að það væru ekki „mannréttindi að fá að vera tónlistarmaður“ heldur væru það forréttindi. Ummælin lét hún falla í tilefni af því að tónlistarmaðurinn Bob Dylan var borinn sökum um kynferðisbrot sem á að hafa átt sér stað fyrir 60 árum síðan,“ segir Haukur í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

Edda taldi réttast að tónlist Dylans yrði tekin úr spilun á útvarpsstöðvum og segir Haukur hana hafa gefið í skyn að eðlilegt væri að verk annarra listamanna, sem bornir hafa verið sökum um óviðeigandi hegðun, yrðu fjarlægð úr ljósvakamiðlun.

„Hún er svo sem ekki ein um þessa skoðun. Ef horft er fram hjá misskilningi áhrifavaldsins á mannréttindahugtakinu (það eru nefnilega mannréttindi að fá að starfa við það sem maður vill) og því mikilvæga sjónarmiði að einstaklingur getur ekki talist sekur við það eitt að bornar séu á hann sakir, þá eru fleiri hliðar á málinu,“ segir Haukur og bætir við að mikilvægt sé að þolendum ofbeldis sé veittur stuðningur. Útskúfun meintra gerenda snerti þó fleiri en þá eina.

„Í fjölda tilvika eiga tugir einstaklinga stóran þátt í sköpun listaverka. Hinn brotlegi listamaður á sjaldnast einn heiðurinn. Hljómsveitarmeðlimir, textahöfundar, listflytjendur, leikstjórar, hljóðfæraleikarar og aðrir rétthafar listaverka hafa allir hagsmuni af því að tónverk verði flutt og kvikmyndir áfram sýndar. Þetta fólk hefur ekkert sér til saka unnið,“ segir Haukur og nefnir handahófskennt dæmi:

„Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir á, svo dæmi sé tekið, ekki að þurfa að þola það að kvikmyndin um Jókerinn verði afmáð úr kvikmyndasögunni vegna þess eins að aðalleikari myndarinnar braut af sér. Tilfinningaríkar samfélagsumræður kalla á yfirvegaðar aðgerðir og hinn sívaxandi slaufunarkúltúr er ólíklega rétta leiðin áfram.“