Haukur lætur fýlu­púkana heyra það: „Við höfum aldrei haft það eins gott og núna“

„Stað­reynd málsins er hins vegar sú að við höfum aldrei haft það eins gott og akkúrat núna. Hvað sem fýlu­púkum sam­fé­lags­miðlanna kann að finnast um það,“ segir Haukur Örn Birgis­son í bak­þönkum Frétta­blaðsins í dag.

Haukur skrifar þar um þá nei­kvæðni sem á það til að lita um­ræðuna um mál­efni líðandi stundar.

„Á hverjum degi og oft á dag fáum við fréttir af far­sóttum, stríðs­á­tökum, glæpum, fá­tækt, gjald­þrotum og hungur­sneyð. Stór­spilltum þing­mönnum og hlýnun jarðar. Þessar fréttir há­mum við í okkur og stjórn­mála­menn espast upp við að sjá tölur yfir lesturinn. Þeir halda því á­fram að tala og skrifa með há­stöfum. Þeir bæta í. Fjöl­miðla­menn flytja svo enn fleiri fréttir af sama meiði,“ segir Haukur og bætir við að nei­kvæðnin selji og það sé allt á út­sölu.

„Við erum sólgin í ham­farir. Af lestri frétta er engu líkara en að við séum stödd á versta tíma­bili mann­kyns­sögunnar. Við höfum aldrei haft það verra, erum á síðustu metrunum. Brátt verður þetta búið spil. Heimur versnandi fer. Eða hvað?,“ spyr Haukur og bendir á nokkrar at­hyglis­verðar tölu­legar stað­reyndir.

„Á hverju ári deyja fleiri vegna of­áts heldur en hungurs. Fleiri deyja vegna sjálfs­víga heldur en stríðs, glæpa og hryðju­verka saman­lagt. Fleiri deyja úr elli heldur en sjúk­dómum. Þessar merki­legu upp­lýsingar eru að­gengi­legar á vef Al­þjóða­heil­brigðis­mála­stofnunarinnar og eru auð­vitað í engu sam­ræmi við mál­flutning heims­enda­spá­manna,“ segir Haukur.

Hann bendir á að flókin vel­megunar­vanda­mál hafi nú tekið fram úr náttúru­ham­förum, far­sóttum og hungur­sneyð sem stærstu vanda­mál heimsins. Þá hafi fram­farir í heil­brigðis­þjónustu stór­aukið lífs­líkur sjúkra og ný­fæddra.

„Í fyrsta sinn í mann­kyns­sögunni er það vel­megunin sem reynist ham­förum og ill­mennum hættu­legri. Það eru mikil tíma­mót. Heimurinn stríðir við alls konar vanda­mál og ég ætla ekki að gera lítið úr þeim,“ segir hann og bætir við að lokum að við höfum aldrei haft það eins gott og nú. „Hvað sem fýlu­púkum sam­fé­lags­miðlanna kann að finnast um það.“