„Öll brjótum við þessar reglur mörgum sinnum á dag en það stöðvar okkur samt ekki í því að klaga hvert annað og jafnvel tilkynna til lögreglu þegar aðrir stíga sín feilspor,“ segir Haukur Örn Birgisson, lögfræðingur og pistlahöfundur Fréttablaðsins, í bakþönkum blaðsins um helgina.
Í pistlinum segir hann að við finnum stöðugt nýjar leiðir til að hefja okkur upp í þeirri viðleitni að gera okkur að betri manneskjum en við vorum í gær. Hann nefnir áramótin og hin svokölluðu áramótaheit sem dæmi og viðurkennir að hann taki sjálfur þátt í þeim sirkus, með misjöfnum árangri.
„Það er gott að okkur skuli í sífellu takast að finna leiðir til að bæta okkur og enn betra er þegar viðbæturnar eru festar í sessi, svo þær endist lengur en til 20. janúar. Önnur, en umtalsvert verri, leið til sjálfsupphafningar er þegar við beinum athyglinni frá eigin ágöllum og bendum þess í stað á mistök annarra,“ segir hann og bætir við að mörgum virðist líða betur með sjálfa sig þegar aðrir klúðra hlutunum. Nýliðins árs megi minnast fyrir fjölda slíkra uppákoma.
„Sóttvarnareglur, sem við fæst fáum botn í, eru frábært dæmi um þetta. Öll brjótum við þessar reglur mörgum sinnum á dag en það stöðvar okkur samt ekki í því að klaga hvert annað og jafnvel tilkynna til lögreglu þegar aðrir stíga sín feilspor. Full vandlætingar bendum við og hrópum á ráðherrann sem fór í veislu, þingmanninn sem fór í golf, stúlkurnar sem hittu ensku fótboltadrengina og kaþólsku kirkjugestina sem varð á í messunni, bókstaflega. Þau skulu smánuð fyrir að vera ekki fullkomin eins og við hin. Þeim er hollara að biðjast afsökunar.“