Haukur Heiðar með hrollvekjandi vitnisburð frá gosstöðvunum í gær

Haukur Heiðar Leifsson lýsir því sem fyrir augu bar þegar hann fór á gosstöðvarnar í gær. Hann segir að sér hafi blöskrað margt en hann lýsir þessu í löngum þræði á smafélagsmiðlinum Twitter.

Haukur tekur fyrst fram að 6 kílómetrar af 12 kílómetra langri göngunni fram og til baka sé „MJÖG grýttur.“ Hann segir hana hæga yfirferðar og hreinlega hættulega ef fólk passar sig ekki.

„Sá konu snúa á sér ökklann fyrir framan mig og steypast svo með hausinn á næsta stein. Snéri upp á ökklann og fékk opið sár á höfði. Fór frekar vel mv hvernig þetta hefði getað endað.“

Fullt af túristum í engu ástandi

Þá segist Haukur hafa séð fullt af túristum í engu ástandi til að fara þarna. „Hópur karlmanna frekar ölvaður sem var að leggja af stað upp um ca. 23:00. Fólk nýstigið úr flugvél í peysu og blazer. Hitastig var að nálgast frostmark um kl. 23.“

Þá segist Haukur hafa séð fullt af liði að ganga á hrauni. „Galin hegðun. Mætti svo einum smeð ungabarn á bakinu. Barnið var að vísu vel klætt en ég get ekki hugsað mér það til enda ef hann myndi detta í myrkrinu.“

Þá segir Haukur að flugumferð einkavéla hafi verið galin yfir gosstöðvunum. „Allt í lagi ein og ein þyrla en rellur í miklu lágflugi aftur og aftur eyðileggja upplifun þeirra sem sitja í brekkunni.“

Að lokum tekur Haukur fram að gosgangan sé geggjuð upplifun. „Verður flott þegar búið er að slétta erfiðasta kaflann en fólk þarf að vera mjög vel útbúið nú þegar styttist í haustið. Klæða sig vel og bera ljós í myrkri. Passa hvar það stígur. Þá er þetta fínt. Sýndist íslendingar flestir hafa allt á hreinu.“