Haukur gerir grín að ÁTVR: „Svokölluð þriggja vasaklúta umsögn“

Haukur Örn Birgisson, lögfræðingur og formaður Golfsambands Íslands, skýtur föstum skotum að ÁTVR vegna frumvarps sem myndi gera handverksbrugghúsum kleift að selja bjór út úr húsi á framleiðslustað.

Í umsögn ÁTVR með frumvarpinu kemur fram að með þeirri undanþágu sem frumvarpið gerir ráð fyrir myndu forsendur fyrir ÁTVR að öllum líkindum bresta.

„Það vekur enga sérstaka furðu að ríkiseinokunarverslunin sé mótfallin auknu frjálsræði í viðskiptum. Ætli danskir kaupmenn hefðu ekki skilað inn svipaðri umsögn vegna frumvarps um afnám einokunarverslunar Dana árið 1787? Maður hefði samt einhvern veginn haldið að hlutunum væri öfugt farið,“ segir Haukur í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

Hann bendir á að yfirleitt séu það einkaaðilarnir sem eigi í vök að verjast gegn ríkisfyrirtækjunum sem öll starfa í skjóli hins opinbera með botnlausa sjóði. Þetta þekki til dæmis íslensk fjölmiðlafyrirtæki vel.

„Nú er það hins vegar frjálsa verslunin sem mun koma niður á ríkisfyrirtækinu með óbilgjörnum hætti. Ég meina, hver hefur ekki samúð með því sjónarmiði einokunarrisans að aukið verslunarfrelsi muni hugsanlega leiða til þess að viðskiptavinirnir ákveða frekar að versla annars staðar? Þetta er beinlínis ómannúðlegt gagnvart ÁTVR, ef maður hugsar út í það. Engan skal þó undra þótt ríkisstofnun, sem hefur það lögfesta markmið að takmarka aðgengi að áfengi á sama tíma og hún hreykir sér af miklu vöruúrvali í verslunum sínum, skuli vera rugluð í ríminu.“

Haukur endar pistilinn á að skjóta nokkuð fast á ÁTVR.

„Jafnvel hörðustu karlmenn geta ekki haldið aftur af tárunum þegar lesin er 25 blaðsíðna baráttuumsögn ríkisstofnunarinnar fyrir áratugalöngu einokunarvaldi sínu í þeirri viðleitni að leggjast gegn því að örfá krúttleg brugghús á landsbyggðinni fái að selja nokkra bjóra til þyrstra ferðalanga. Svokölluð þriggja vasaklúta umsögn sem lætur höfunda The Notebook líta út fyrir að vera kaldrifjaða.“