„Ferðaskömm hefur gripið landann,“ segir Haukur Örn Birgisson lögfræðingur í athyglisverðum bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
Þar skrifar Haukur um þá skrýtnu tíma sem við lifum, en kórónuveirufaraldurinn heldur áfram að hafa veruleg áhrif á daglegt líf okkar.
Haukur bendir á að fyrir sléttu ári hafi fólk verið hvatt til þess að ferðast ekki um páskana, ekki einu sinni innanlands.
„Flestir hlýddu kallinu enda var veiran ný af nálinni og óvissan mikil. Enginn vildi stuðla að auknum smitum eða hætta á að smita þá sem viðkvæmastir voru. Á hverjum degi greindust tugir nýrra smita og alls voru þúsund Íslendingar með virk smit, margir hverjir í öndunarvélum.“
Haukur bendir á að sem betur fer hafi staðan gjörbreyst og eru ný dagleg smit talin á fingrum annarrar handar. Þá er enginn á spítala og hefur staðan verið góð um nokkurra mánaða skeið. Loks bendir hann á að viðkvæmustu hóparnir hafi verið bólusettir.
„Af þessum sökum er fólk farið að leyfa sér aukið svigrúm í sínu daglega lífi, aukin lífsgæði. Ekki veitir af. Sumir heimsækja bústaðinn á meðan aðrir fara utan. Ferðalög til og frá Íslandi eru ekki ólögleg og Íslendingum er frjálst að ferðast. Á þessu ætti enginn vafi að leika. Engu að síður er það svo að þeir sem út fyrir landsteinana fara, fara huldu höfði fyrir og eftir ferðalög sín af ótta við aftöku á samfélagsmiðlum,“ segir Haukur.
„Engu er líkara en að ferðaskrifstofur, sem freista okkar með gylltum sólarströndum og iðjagrænum golfvöllum, hafi tekið að sér hlutverk fíkniefnasala á meðan neytendurnir ganga um Leifsstöð með bréfpoka yfir hausnum af ótta við að þekkjast. Fjölmiðlar taka svo þátt í vitleysunni og flytja fréttir af frægum sem sést hafa með ferðatösku á Suðurnesjum. Ferðalangar eru nafngreindir í fjölmiðlum eins og þeir hafi gerst sekir um lögbrot. Trítilóður múgurinn krefst skýringa á ferðalögunum – eins og honum komi þau eitthvað við.“