„Fyrir ráðherra er þetta vonlaus staða til að vera í og það hljóta allir að sjá að þetta fyrirkomulag gengur ekki. Annaðhvort liggur ákvörðunarvaldið hjá ráðherra eða kærunefndinni. Það getur ekki legið hjá báðum. Það verður ekki bæði haldið og sleppt.“
Þetta segir Haukur Örn Birgisson lögfræðingur í bakþönkum Fréttablaðsins í dag. Þar skrifar hann um málefni egypsku Khedr-fjölskyldunnar sem var veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum í síðustu viku. Til stóð að vísa fjölskyldunni úr landi en eins og kunnugt er var það gagnrýnt harðlega. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar, Katrín Jakobsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Ásmundur Einar Daðason, fengu til dæmis að heyra það.
Í grein sinni bendir Haukur á að fram til ársins 2015 hafi afgreiðsla útlendingamála verið í ákveðnum ólestri.
„Reglulega stóðu öll spjót á dómsmálaráðherra, þegar hann tók ákvörðun um að vísa fólki úr landi sem ekki uppfyllti lagaskilyrði um dvalarleyfi. Það þótti ótækt að pólitíkus væri að skipta sér af því hverjir fengu að setjast hér að. Virtar alþjóðastofnanir gerðu einnig athugasemdir við aðkomu ráðherra að slíkum málum og lögðu til að ákvörðunarvaldið yrði fært úr hans höndum,“ segir Haukur.
Hann rifjar svo upp að lögum hafi verið breytt og í stað ráðherra skyldi nefnd óháðra sérfræðinga eiga síðasta orðið. Þessari kærunefnd hafi verið ætlað að starfa eftir almennum reglum, þar sem pólitík og dægurþras ættu enga aðkomu.
„Ákvörðun sjö manna kærunefndarinnar í máli egypsku Khedr-fjölskyldunnar fór ekki fram hjá neinum. Nefndin taldi að vísa ætti fjölskyldunni úr landi og kallaði niðurstaðan á forvitnileg viðbrögð. Þeir sem áður höfðu krafist hlutlausrar málsmeðferðar sérfræðinga, í stað pólitískra afskipta, kölluðu eftir því að ráðherra beitti sér í málinu og tæki fram fyrir hendur kærunefndarinnar. Pólitískt mat átti nú að trompa það faglega. Voru bæði dóms- og félagsmálaráðherra sakaðir um mannréttindabrot gegn fjölskyldunni,“ segir Haukur Örn.
Hann segir að það sé vonlaust fyrir ráðherra að vera í þessari stöðu og það hljóti allir að sjá að fyrirkomulagið gengur ekki.
„Annaðhvort liggur ákvörðunarvaldið hjá ráðherra eða kærunefndinni. Það getur ekki legið hjá báðum. Það verður ekki bæði haldið og sleppt.“
Haukur tekur fram að það sé yndislegt fyrir Khedr-fjölskylduna að hún fái að búa hér áfram og óskar hann henni til hamingju með niðurstöðuna. „Á sama tíma verður þó ekki hjá því komist að gera athugasemd við aðferðafræðina að baki, sem hlýtur að teljast í ákveðnum ólestri.“