Torfæruökumaðurinn Haukur Viðar Einarsson fékk óvænt en skemmtilegt símtal síðastliðinn mánudag um að sýna ákveðnum manni torfærubílinn Heklu.
Sagt er frá þessu á vef Sunnlenska og vísað í Facebook-færslu sem birtist í gær á Facebook-síðunni Team #16.
„Team 16 fékk símtal fyrir tveimur dögum að sýna ákveðnum manni Heklu í actioni. Við sögðum strax JÁ við þessari beiðni. Þessi dagur var magnaður! Sá sem bað um Heklu var enginn annar en JEAN TODT. Vávává þvílíkur heiður,“ segir í færslunni.
Todt þessi er mörgum akstursíþróttaáhugamönnum að góðu kunnur en hann er forseti FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandsins og fyrrum liðstjóri formúluliðs Ferrari. Todt, sem er 75 ára gamall Frakki, var meðal annars sá sem fékk Michael Schumacher til Ferrari-liðsins á sínum tíma.
„Það sem einkenndi áhorfendurna var kjálkinn niðrí mold, undrunar svipir og algjörlega heillaðir uppúr skónum,“ segir meðal annars í færslunni. Hekla er einn öflugasti torfærubíll landsins og vekja bílarnir jafnan athygli erlendra bílaáhugamanna sem koma hingað til lands.
Á vef Sunnlenska kemur fram að sambýliskona Todts sé leikkonan Michelle Yeoh, en hún mun vera stödd á Íslandi þessa dagana við tökur á þáttaröðinni The Witcher sem fara meðal annars fram á Suðurlandi.