Hátt í þrjá­tíu gegn þrem – ruddust inn og stungu tví­tuga drengi

Sam­kvæmt heimildum Frétta­blaðsins tóku hátt í þrjátiu manns þátt í því að ráðast á þrjá menn í kringum tví­tugt á Banka­stræti Club í gær­kvöldi.

Mennirnir særðust allir al­var­lega en eru ekki í lífs­hættu. Þá höfðu hótanir verið birtar opin­ber­lega á sam­fé­lagmiðlum fyrir á­rásina.

Sam­kvæmt heimildum Frétta­blaðsins flugu hótanir á víxl opin­ber­lega á sam­fé­lags­miðlum skömmu fyrir á­rásina á Banka­stræti Club í gær­kvöldi. Mennirnir eru sagðir hafa verið „í stríði“ á sam­fé­lagmiðlum og birtust slíkar hótanir á Inst­reikningi eins mannanna sem er í haldi

Margeir Sveins­son, að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að þetta sé eitt af því sem er til skoðunar hjá lög­reglunni.

„Það er bara eitt af því sem við erum að skoða,“ segir Margeir. Hann gat ekki sagt frekari til um tengsl mannanna. „Nú er málið bara á frum­stigi. Þetta er bara eitt af því sem við erum að skoða og sjá hver tengslin. Við erum að reyna ná utan um málið og átta okkur á fjöldanum og hverjir eru þarna að verki,“ segir Margeir.

Yfir­heyrslur hafa verið í gangi bæði af vitnum og öðrum. „Og það bara heldur á­fram,“ segir Margeir.

Fjórir voru hand­teknir í nótt eftir stungu­á­rásina.

Til­­­kynning um málið barst lög­­reglu kl. 23.33 og hélt hún strax á vett­vang, en fyrir liggur að það var hópur manna sem réðst inn á skemmti­­staðinn og að þre­­menningunum, sem þar voru staddir í her­bergi. Á­rásar­­mennirnir voru dökk­­klæddir og með grímur, en þeir yfir­­­gáfu skemmti­­staðinn um leið og á­­rásin var yfir­­­staðin.

Talið er að þeir hafi verið innan­­­dyra í mjög skamman tíma, en leit að þeim hófst strax eftir að lög­reglan kom á vett­vang. Tugir lög­­reglu­manna hafa komið að rann­­sókn málsins frá því í gær­­kvöld og nótt og hafa verið fram­­kvæmdar all­nokkrar hús­­leitir í þágu hennar.

„Rann­­sókn málsins er í for­­gangi hjá Lög­­reglunni á höfuð­­borgar­­svæðinu, en við að­­gerðirnar í gær­­kvöld og nótt hefur hún notið að­­stoðar sér­­sveitar ríkis­lög­­reglu­­stjóra. Rann­­sóknin beinist m.a. að því hvort á­­rásin tengist upp­­­gjöri eða hefndar­að­­gerðum, en á þessu stigi er of snemmt að full­yrða um slíkt. Svo virðist sem máls­­aðilar séu flestir Ís­­lendingar, en það á eftir að skýrast frekar. Lög­reglan vopnaðist vegna að­­gerðanna í gær­­kvöld og nótt, en um mjög al­var­­lega árás er að ræða,“ segir í til­­­kynningu lög­­reglunnar.