Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðarbrot og líkamsárás á síðasta ári.
Maðurinn var meðal annars ákærður fyrir að stela raftækjum úr verslun Hagkaupa í Skeifunni 9. júlí 2019. Rúmum mánuði síðar, eða þann 14. ágúst, stal hann matvælum í tvígang úr verslun Krónunnar við Bíldshöfða fyrir samtals rúmlega 80 þúsund krónur.
Maðurinn var ákærður fyrir fleiri þjófnaðarbrot, meðal annars úr verslun ÁTVR.
Sama dag og maðurinn var tekinn fyrir þjófnað í Krónunni, þann 14. ágúst 2019, veittist hann með ofbeldi að starfsmanni verslunarinnar. Í ákæru segir að hann hafi tekið í báðar hendur starfsmannsins og gefið honum hnéspark í nárann þegar starfsmaðurinn reyndi að stöðva för hans út af lager verslunarinnar. Starfsmaðurinn hlaut þrota og eymsli í vinstri nára.
Maðurinn játaði sök fyrir dómi en hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Við ákvörðun refsingar var litið til játningar mannsins og þess að hann hefur nú farið í vímuefnameðferð. Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Auk þess var honum gert að greiða Krónunni tæpar 97 þúsund krónur og ÁTVR rúmlega fjögur þúsund krónur.