Hasar í heita pottinum: „Unga kona, þú ert örugglega 20 kílóum of feit“

Svo virðist vera sem óheflaðir eldri karlar eigi það til að gera sundlaugargestum á höfuðborgarsvæðinu lífið leitt. Fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson, sem heldur úti vefnum Eirikurjonsson.is, hefur birt fréttir að undanförnu þar sem hann segir frá þessu.

Í lok septembermánaðar sagði hann frá því að til snarpra orðaskipta hafi komið í heita pottinum í Breiðholtslaug á milli rafvirkja og útlendings vegna rasískra ummæla þess fyrrnefnda.

„Lætin byrjuðu þegar að rafvirkinn kallaði á mann sem staddur var í pottinum að hann hefði séð vinkonu hans dauðadrukkna í inngangnum með “svörtum niggara” sem líka var drukkinn. Þá tók útlendingurinn til máls og sagði að svona gerðu menn ekki,“ sagði í frétt Eiríks þann 29. september.

Þessi tiltekni rafvirki virðist hafa verið aftur á ferðinni í vikunni eins og fram kemur í frétt Eiríks í gær. Hann hafi látið þau orð falla, í heyranda hljóði, að konur ættu ekki að fá meiri völd enda myndu þær ekki höndla það. Ung kona er sögð hafa mótmælt þessum orðum en rafvirkinn brugðist við með því að gera lítið úr líkama hennar.

„Unga  kona, þú ert örugglega 20 kíóum of feit. Þú þarft að skokka meira og minnka matarskammtinn,” er maðurinn sagður hafa sagt.

Í frétt Eiríks í gær segir að fitufordómar séu miklir í sundlaugum landsins.

„Þar gantast, helst eldri karlmenn, með feitt fólk. Í Breiðholtslaug má oft heyra karla, fastagesti síðdegis, hæðast að útliti fólks sér til skemmtunar. Virðast ekki hafa um annað að ræða.“