Hart deilt um besta íslenska nammið: „Álíka mikil vonbrigði og vont kaffi“

Fjörugar umræður hafa farið fram á Twitter-síðu fjölmiðlamannsins Atla Fannars Bjarkasonar um besta íslenska nammið. Þegar sælgæti er annars vegar á fólk það til að skiptast í fylkingar og eiga margir sitt uppáhalds nammi eins og þeir eiga sitt uppáhalds íþróttalið.

Færsla Atla sem hóf umræðurnar var svona:

„Ok við eigum helling af góðu nammi en er stjörnurúllan ekki geitin? svona ef við skoðum bragð, útlit og menningarlegt impact?“

Einhverjir tóku undir þetta hjá Atla.

„Góð (mjúk) sjörnurúlla er geitin. Vond stjörnurúlla (hörð) er álíka mikil vonbrigði og vont kaffi,“ sagði einn.

Aðdáendur íslenska Þristsins létu svo að sér kveða og töldu illa vegið að þessu sígilda íslenska nammi sem margir hreinlega elska.

„Elska Þristinn og var að hugsa um hann þegar ég skrifaði þetta en ég ætla að deyja á þessari hæð,“ svaraði Atli Fannar.

Einn nefndi svo annað sælgæti sem er töluvert vanmetið í augum margra.

„En hvað með kókosbolluna? Er hún ekki geitin? Allir leikirnir, allar kökurnar, eftirréttirnir? Menningarlegt gildi hennar er svakalegt, bragð, útlit og notkun.“

Atli Fannar sagði að kókosbollan ætti vissulega alltaf stað í hjarta hans – og í bragðarefnum.

Aðdáendur Þristsins voru þó ekki búnir að segja sitt síðasta.

„Það eina sem er betra en þristur eru tveir þristar,“ sagði einn á meðan veitingamaðurinn Ólafur Örn Ólafsson bætti við: „Nei, Þristur er geitin. Sorry sem ekki reglurnar.“