Harm­leikurinn í Grafningi: Maðurinn hafði búið í bílnum um nokkurt skeið

Rann­sókn lög­reglunnar á bíl­bruna sem varð í Grafningi á föstu­dags­kvöld er í fullum gangi. Eins og komið hefur fram lést maður í brunanum. Rann­sókn beinist að upp­tökum elds­voðans og hvers vegna boð um eldinn bárust ekki lög­reglunni á Sel­fossi á föstu­dags­kvöld.

Morgun­blaðið greinir frá því í dag að bif­reiðin, gömul rúta af gerðinni Mercedes Benz, hafi verið inn­réttuð sem hús­bíll. Maðurinn, sem talinn er hafa látist í brunanum, er sagður hafa átt at­hvarf sitt í bílnum og haldið til í honum um nokkurt skeið. Þannig er hann sagður hafa verið í Hvera­gerði síðasta vetur. Maðurinn er á fer­tugs­aldri en hundar mannsins dóu einnig í brunanum.

Morgun­blaðið hefur eftir Oddi Árna­syni, yfir­lög­reglu­þjóni á Suður­landi, að nú sé rann­sakað hver upp­tök eldsins voru í bílnum. Þá þurfi að stað­festa auð­kenni mannsins þó talið sé víst að maðurinn sem fórst hafi verið sá hinn sami og hafði dvalið í bílnum undan­farin misseri.