Harmleikurinn á Blönduósi: Sonur hjónanna sagður hafa lagt í skotmanninn með berum höndum

Maðurinn sem skaut konu til bana og særði eiginmann hennar lífshættulega er sagður hafa notað haglabyssu sem búið var að saga hlaupið af. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins sem greinir frá þessu í dag.

Heimildir Fréttablaðsins herma að lögregla sé með til skoðunar hvort byssumaðurinn, sem var fæddur og uppalinn á Blönduósi, hafi fyrst skotið fyrrum atvinnurekanda sinn. Þá hafi eiginkona atvinnurekandans verið sloppin út úr eigin húsi en hafi snúið aftur við skothvellinn. Byssumaðurinn hafi þá beint byssunni að henni og skotið.

Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að sonur hjónanna sé, samkvæmt heimildum blaðsins, talinn hafa orðið vitni að morðinu á móður sinni. Hann hafi þá lagt í byssumanninn með berum höndum þegar hann var að endurhlaða byssuna í þriðja skiptið. Lauk þeim átökum með bana árásarmannsins.

Fréttablaðið segir frá því að byssumaðurinn hafi verið orðinn einrænn í seinni tíð.

Syni hjónanna var sleppt úr haldi í fyrrakvöld en er enn með stöðu sakbornings, að því er segir í Fréttablaðinu. Lögregla hefur varist allra frétta af gangi rannsóknarinnar en sagði þó í gær að eiginmaður konunnar sem lést væri í lífshættu.