Axarárás átti sér stað við Dalskóla seinni partinn í fyrradag, þriðjudag. Þar réðst maður á fyrrverandi konu sína og var hún í kjölfarið flutt á spítala, mikið slösuð en ekki í lífshættu.
Svo virðist sem maðurinn hafi verið handtekinn og að krafist verði að hann muni sæta gæsluvarðhaldi.
Vísir greinir frá málinu, en í frétt miðilsins segir að mörg vitni hafi orðið að árásinni, þar á meðal börn.
Helena Katrín Hjaltadóttir, skólastjóri Dalskóla, hefur sent út póst vegna málsins, en í honum kemur fram að atvikið sem um ræði snerti tvö börn sem eru í skólanum.